The Hangover (2009) ***1/2

 

Hangoverposter09

 

"The Hangover" virkar á mig sem frekar lúmsk snilld. Hún er oft fyndin og þá sérstaklega í meðförum senuþjófsins Zach Galifianakis sem frekar klikkaður en velviljaður vandræðagemlingur. Að sjálfsögðu er myndin skylduáhorf fyrir þá sem höfðu gaman af Skaupinu 2009, sem notaði nokkrar senur úr þessari mynd á vel heppnaðan hátt.

Sagan er einföld. Fjórir vinir fara til Las Vegas í steggjapartý, en þeir detta svo hrikalega í það að þeir vakna minnislausir og með hausverk daginn eftir. Aðal skipuleggjandi ferðarinnar, Phil Wenneck (Bradley Cooper) er kennari í barnaskóla sem ætlar svo sannarlega að sjá til þess að vinur hans fái eftirminnilega skemmtun, og leigir flottasta og dýrasta herbergið sem hægt er að fá í borginni, að sjálfsögðu með kreditkorti vinar síns, tannlæknisins Stu Price (Ed Helms) sem vaknar með horfna tönn og gjörbreyttar framtíðarhorfur. Alan Garner (Zach Galifianakis) er svo hinn léttgeggjaði svili, sem olli minnisleysi allra félaganna, að sjálfsögðu óvart. 

Félagarnir vakna í hótelherbergi sem hefur verið lagt í rúst. Það er tígrisdýr inni á baði og svo virðist sem að rúmi hafi verið kastað út af svölum, að ógleymdu barni inni í fataskáp. Og vinur þeirra Doug (Justin Bartha) hefur horfið og þeir hafa ekki nema um sólarhring til að koma honum í brúðkaupsveisluna hans. Í leitinni að vini sínum komast þremenningarnir smám saman að því hvað gerðist þessa örlagaríku nótt, og hvernig þeim tókst að koma við á spítala, stela lögreglubíl, lenda í návígi við snarklikkaðan mafíósa og Mike Tyson og súludanskonu leikna af Heather Graham.

Prýðileg skemmtun.

 

Mynd: Wikipedia


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Og til hamingju með að vera búin að finna gleðina aftur

Ómar Ingi, 11.1.2010 kl. 20:02

2 Smámynd: Hrannar Baldursson

Ég er glaður og hamingjusamur einstaklingur. Hef bara miklar áhyggjur af þjóð minni og þeim sem landið munu erfa.

Hrannar Baldursson, 11.1.2010 kl. 20:11

3 Smámynd: Gísli Foster Hjartarson

Einstaklega skemmtileg mynd stóð sjálfan mig af því að hlægja upphátt þó nokkrum sinnum og gerist nú ekki alltaf þó að mér finnsit mynd fyndin. Notkunin á þessum atriðum í skaupinu  var mikil snilld.

Gísli Foster Hjartarson, 12.1.2010 kl. 13:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband