Magnaðir hæfileikar hinnar 47 ára Susan Boyle - þú missir andlitið

Þú verður að sjá þetta!

Þetta myndband getur kennt fólki heilmikið um sjálft sig. Veltu fyrir þér af hverju Susan Boyle hefur aldrei fengið tækifæri á allri sinni ævi til að sýna hvað í henni býr. Hún birtist á sviðinu frekar ræfilsleg kattahúsmóðir, klædd einum ljótasta kjól sem sögur fara af en full af sjálfstrausti sem er algjörlega úr takti við ásýnd hennar.

Samt slær hún í gegn.

Þú verður að smella tvisvar á myndbandið til að sjá það.

Hvernig upplifðir þú þetta atriði?

Stóðst Susan Boyle væntingar þínar eða voru væntingarnar svo lágar og frammistaðan svo frábær að þú situr ennþá gapandi yfir þessu, eins og ég?


mbl.is Hæfileikar leynast víða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

VÁ. Þrjár hlustanir og gæti haldið áfram.

Kolla (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 11:48

2 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Ég var reyndar búin að sjá myndbandið annars staðar en það er engu að síður frábært, að sjá þessa konu í hálfgerðum hagkaupssloppi og svona úfin eins og hún er og svo opnast eitthverjar flóðgáttir og hún syngur eins og engill! Gaman líka að fylgjast með dómurunum.

Don´t judge a book by it´s cover!

Rut Sumarliðadóttir, 14.4.2009 kl. 12:14

3 identicon

Alveg er það makalaust hvað útlitsdýrkunin getur komið manni í koll. Samkvæmt henni á ljót kona ekki að geta sungið vel, en Susan Boyle sló alla í rot með magnaðri framkomu og stórkostlegum söng. Hún var eins og prinsessa í álögum og sló algerlega í gegn, mér fannst hún frábær!

Kalli (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 12:55

4 identicon

Ég segi nú bara vááááá þvílík rödd. Maður verður hrærður við þetta.

kveðja Rafn.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 12:56

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Þetta er nútíma Öskubuskuævintýri....tárin runnu hér

Hólmdís Hjartardóttir, 14.4.2009 kl. 13:06

6 identicon

Eftir tvær hlustanir runnu tár enn niður kinnar! Ótrúlegt!

alfreð guðmundsson (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 13:12

7 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Ég er stórhrifin og mest þótti mér til um þegar andlitið datt af dómurunum. Hún er gullnáma hæfileika þessi kona, söngur, sviðsframkoma og tjáning var svo ekta og nátturlegt en um leið svo mikil fágun.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 14.4.2009 kl. 13:47

8 identicon

Frábært,og gaman að fylgjast í upphafi með áhorfendum og hvað þá dómurum.Er búinn að horfa á þetta fimm sinnum,og er bara magnað að heyra.Það tók hana bara fimm sekúndur að snúa áhorfendum og dómurum á sitt band.

Númi (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 15:32

9 Smámynd: Róbert Tómasson

Vááá það leið heil mínúta þar til ég náði hökunni upp af lyklaborðinu og nú sit ég og hugsa um allar bækurnar sem ég hef dæmt eftir kápunni.....

Róbert Tómasson, 14.4.2009 kl. 16:50

10 Smámynd: Ómar Ingi

Já var búin að birta þetta fyrir einhverju síðan , mér fannst þetta alveg magnað og sannar fyrir þeim sem ekki hafa fattað það ennþá að útlitið er ekki allt

Ómar Ingi, 14.4.2009 kl. 17:41

11 Smámynd: Himmalingur

Undirritaður hefur aldrei dæmt innihald eftir umbúðum, og þessi elska er gott dæmi um það, að útlitið hefur minnst um hæfileika að segja hvað þá innræti, enda eru mörg dæmi þess að æði oft er flagð undir fögru skinni! Einstök kona!!!

Himmalingur, 14.4.2009 kl. 17:55

12 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Frábært en ekki til fyrirmyndar hvað dómarnir sýndu mikla lítilsvirðingu fyrir fram.

Sigurður Þór Guðjónsson, 14.4.2009 kl. 18:13

13 Smámynd: TARA

Þetta var hreint út sagt stórkostlegt...og minnir á ungan mann sem ég sá einu sinni keppa í þessu....hann hafði ekki utlitið með sér heldur, en sigraði hug og hjörtu allra með frábærum söng.

Þetta sýnir bara að það á aldrei að dæma fólk eftir útlitinu...því víða leynist drottning undir tötrunum.

TARA, 14.4.2009 kl. 18:18

14 identicon

ég get ekki bætt neinu við ofanritaðar athugasemdir - mig bara skortir lýsingarorð, en ég hafði þó rænu á að senda sjálfum mér þetta í e-mail ( er sko ekki hættur að hlusta og horfa )

Eyþór Örn Óskarsson (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 23:14

15 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Vaá !!!! maður á ekki til orð, alveg stórkostlegt og undrunarsvipurinn á dómurunum og allur salurinn var gagntekinn.  Frábært.

Þakka þér fyrir Hrannar að koma með þetta.

Bestu kveðjur,

Tómas Ibsen Halldórsson, 15.4.2009 kl. 00:51

16 identicon

Hef sjaldan orðið jafn hissa og kennir manni að dæma ekki fyrirfram. Frábært að konan fékk loksins tækifæri ;-)

gunnar Þórarinsson (IP-tala skráð) 15.4.2009 kl. 01:46

17 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

Fallega syngur hún Susan Boyle.  Hinsvegar skýtur hún stoðum undir þá kenningu að víkingar til forna hafi stolið öllum fallegustu konunum í Bretlandi og fært þær til Íslands.  Hinar voru skildar eftir.

Kveðja, Björn bóndi   

Sigurbjörn Friðriksson, 15.4.2009 kl. 02:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband