10 vinsælustu myndirnar á leigunum í síðustu viku (4.8.2008)

Vinsælustu bíómyndirnar síðustu viku á vídeóleigum landsins eru ekkert endilega frábærar kvikmyndir. Hverri mynd fylgir örstutt umsögn um söguþráðinn og sú einkunn sem ég hef gefið viðkomandi kvikmynd. Viljirðu lesa það sem ég hef skrifað um viðkomandi kvikmynd, smellirðu einfaldlega á fyrirsögnina.

 

1.     Fool's Gold

Í stuttu máli: Nýskilið par leitar að gömlu spænskum fjársjóði með aðstoð milljarðamærings og í kapphlaupi við miskunnarlausa glæpamenn. 

Einkunn: 5 af 10

 

2.     Untraceable

Í stuttu máli: FBI netlögga tekst á við fjöldamorðingja sem notar Netið og netverja sem þátttakendur í morðum sínum.

Einkunn: 4 af 10

 

3.     The Bucket List

Í stuttu máli: Milljarðamæringur sem á engan að og bifvélavirki sem lifir góðu fjölskyldulífi eiga báðir 6-12 mánaða ólifaða, og ákveða að gera saman allt það sem þá hafði alltaf langað að gera en aldrei gert.

Einkunn: 7 af 10

 

4.     No Country For Old Men

Í stuttu máli: Hinn fullkomni leigumorðingi hefur þá sérkennilegu áráttu að vilja vera ósýnilegur og skilur því eftir sig blóðuga slóð í eltingarleik við kúreka sem reynir að hafa af honum háa fjárhæð.

Einkunn: 9 af 10

 

5.     Semi-Pro

Í stuttu máli: Sjálfselskur eigandi körfuboltaliðs reynir að koma ömurlegu liði sínu í NBA með því að skipta á þvottavél og gömlum atvinnumanni úr NBA.

Einkunn: 6 af 10

 

6.     Jumper

Í stuttu máli: Ungur bankaræningi getur stokkið yfir tíma og rúm með hugaraflinu einu saman en margra alda gömul lögreglusveit er á eftir honum.

Einkunn: 6 af 10

 

7.     National Treasure: Book of Secrets

Í stuttu máli: Fjársjóðsveiðari þarf að hreinsa æru fjölskyldu sinnar þegar langafi hans er sakaður um að hafa tekið þátt í samsæri um að drepa fyrrum Bandaríkjaforseta Abraham Lincoln.

Einkunn: 6 af 10

 

8.     Be Kind Rewind

Í stuttu máli: Tveir félagar ákveða að endurskapa helstu kvikmyndaperlur sögunnar eftir að allt efni þurrkast út af myndbandsspólunum sem þeir leigja út. 

Einkunn: 6 af 10

 

9.     Juno

Í stuttu máli: Unglingsstúlka verður ólétt eftir tilraunasamfarir með vini sínum og þarf að velja á milli fóstureyðingar eða gefa barnið til ættleiðingar. Málið flækist eftir að hún ákveður hið síðarnefnda og kynnist tilvonandi foreldrum, og það flækist enn frekar þegar tilvonandi ættleiðingarfaðir verður hrifinn af henni.

Einkunn: 9 af 10


10.     P.S. I Love You

Í stuttu máli: Eiginmaður deyr en hefur skilið eftir sig fjölda bréfa til að hjálpa eiginkonunni að komast út úr sorgarferlinu.

Einkunn: 4 af 10

 

 

Ég notast við vinsældalistann af Myndir Mánaðarins.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Takk fyrir þetta, þarf einmitt að finna mér góða mynd, veistu hvort þær eru komnar í Skjá bíó??  ég las p.s. I love you og er alls ekki viss um að ég vilji sjá myndina, bókin hafði rosalega mikil áhrif á mig, sérstaklega þar sem ég hef misst eiginmann, þá snertir þetta dýpra.  Takk aftur

Ásdís Sigurðardóttir, 4.8.2008 kl. 14:45

2 Smámynd: Hrannar Baldursson

Sæl Ásdís. Ég hef aldrei notað Skjá bíó og þekki það dæmi einfaldlega ekki.

Hrannar Baldursson, 4.8.2008 kl. 14:48

3 identicon

Eina myndin sem ég hef séð af þessum lista er No Country for Old Men. Sá hana í bíó og svo aftur á dvd. Hún er snilldarverk og mér fannst hún bara enn betri í annað skiptið sem ég horfði. Ég væri nú alveg til í The Bucket List, þó ekki væri nema fyrir leikarana sem eru í algjöru uppáhaldi hjá mér.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 4.8.2008 kl. 15:30

4 Smámynd: Ómar Ingi

Sæll Don

Fyrsta lagi er þetta ágætis blogg eins og ávallt hjá þér.

öðru lagi er ekkert samansemmerki með góðum kvikmyndum og góðu gengi það veit ég fyrir víst enda horft á glataðar myndir fá rosa aðsókn og góðar kvikmyndir fá enga aðsókn.

Framboð og eftirspurn jú jú

En taktu eftir einu 7 þessara mynda eru gefnar út frá einu og sama fyrirtækinu á Íslandi SAMFILM = SAM MYNDIR = SAM BÍÓ

Já Já ég er að vinna þar en samt EGO

Vona að Morgan Freeman sé í góðu standi eftir þetta bílslys hans

http://ommi.blog.is/blog/ommi/entry/606648/

http://ommi.blog.is/blog/ommi/entry/606685/

Ómar Ingi, 4.8.2008 kl. 16:38

5 Smámynd: Hrannar Baldursson

Sæl Anna, ég hef ekki séð No Country for Old Men í annað skiptið ennþá, en hef þá reglu að gefa ekki mynd 10 nema ég hafi séð hana a.m.k. tvisvar. Einkunnin getur hækkað eða lækkað með hverju áhorfi. Já, tilvalið að horfa á The Bucket List, sérstaklega þar sem Morgan Freeman lenti í alvarlegu bílslysi í dag, og er alvarlega slasaður.

Ómar: Takk fyrir hrósið. Gaman að þið SAMverjar skulið eiga svona margar á vinsældalistanum. Til hamingju með það. Það mætti samt oft gera útgáfurnar hérna heima svolítið meira 'special'. 

Hrannar Baldursson, 4.8.2008 kl. 20:50

6 Smámynd: Sigríður Hrönn Elíasdóttir

Sæll, frábær hugmynd hjá þér, svo frábær að ég er búin að gefa mér tíma til að lesa bloggið þitt á síðunni þinni þar sem forvitni mín var vakin. Síðan þín mjög skemmtileg og fróðleg og ég á örugglega eftir að kíkja oftar inn á hana.

Sigríður Hrönn Elíasdóttir, 5.8.2008 kl. 10:11

7 Smámynd: Hrannar Baldursson

Sigríður Hrönn: Kærar þakkir. Gaman að fá nýjan lesanda í hópinn.

Hrannar Baldursson, 5.8.2008 kl. 10:13

8 Smámynd: Ómar Ingi

SAMmála því en þessi markaður okkar er svo ofboðslega lítill og þá er jú oft verið að hugsa um peningahliðina

Ómar Ingi, 5.8.2008 kl. 11:30

9 Smámynd: Hrannar Baldursson

Skil þig Ómar.

Hrannar Baldursson, 5.8.2008 kl. 11:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband