Meðmæli: I am Sam (2001) ***1/2

Sam Dawson (Sean Penn) er þroskaskertur og hefur alla tíð verið með snert af einhverfu. Heimilislaus kona svaf hjá honum, eignaðist stúlku og lét sig svo hverfa.


Sam elur upp dóttur sína, Lucy Diamond Dawson (Dakota Fanning) með takmarkaðri aðstoð þroskaskertra vina og nágrannkonunnar Annie Cassell (Dianne Wiest) sem þjáist af víðáttufælni. Sam annast barnið eins vel og honum er fært, og ver með henni öllum sínum frístundum. Hún er líf hans og hann elskar hana eins og best verður lýst í fögrum ástarsöngvum.

Kvöld nokkurt leitar vændiskona á Sam, en hann í gæsku sinni talar við hana og er tilbúinn að hjálpa til; en er þá handsamaður og færður á lögreglustöð fyrir ósæmilega hegðun á almannafæri (en ekki án þess að lögregluþjónn káfi á honum fyrst og setur í handjárn). Á lögreglustöðinni vekur Sam athygli barndaverndunarfulltrúans Margaret Calgrove (Loretta Devine), sem ákveður upp á sitt einsdæmi að fylgjast með honum og uppeldi dóttur hans.

Ósköpin dynja yfir þegar Sam heldur afmælisveislu fyrir dóttur sína, - hann er búinn að leigja handa henni loftkastala, bjóða bekkjarfélögum hennar og bíður eftir að hún birtist í dyrunum til að fagna henni óvænt. Þá kemur óvæntur gestur. Það er barnaverndarfulltrúinn Calgrove, sem Sam í sinni góðmennsku býður inn. Þegar Lucy Diamond kemur loks heim, talar einn bekkjarfélagi hennar illa um hana, og Sam leggur hönd á öxl hans til að ræða málin, en faðir drengsins hendir Sam frá stráksa og skipar honum að snerta ekki drenginn. Í sömu mynd kemur Lucy Diamond inn, allir hrópa 'Surprise' og óknyttadrengurinn segir fyrir framan alla að Lucy hafi sagst vera ættleidd; sem kemur Sam í mikið uppnám.

Vegna þessarar uppákomu er Lucy Diamond tekin frá Sam. Örvinglaður án hennar leitar hann hjálpar til vina sinna, og þrátt fyrir að rökhugsun þeirra sé svolítið brengluð detta þeir niður á bestu hugmyndina í stöðunni, að hann leiti sér lögfræðihjálpar.

 

Sam finnur lögfræðinginn Rita Harrison Williams (Michelle Pfeiffer) sem hann ber fyrirfram mikið traust til þar sem að hún ber eitt nafna bítilsins George; en Sam grefur upp alla þá visku sem hann þarf á að halda úr smiðju Bítlanna. Það útskýrir meðal annars nafn dóttur hans.

Lögfræðingurinn Rita er hins vegar upptekin við sinn eigin frama; það upptekin að hún hefur ekki tíma fyrir fólk sem borgar ekki, hvort sem það er Sam, sonur hennar eða eiginmaður. Hún er að vinna í lífsgæðakapphlaupinu en hefur hrasað í lífinu sjálfu. Myndin fjallar svo um það hvernig þessir ólíku einstaklingar hjálpa hvoru öðru við að púsla saman lífi hvort annars.

I am Sam fjallar um fordóma gagnvart þroskaskertum, og jafnframt fordóma þroskaskertra gagnvart öðrum, og hversu erfitt getur verið að sætta þessa tvo aðskildu heima. Þegar Lucy fæðist og vex úr grasi, og greind hennar eykst hratt og örugglega, og skýst framúr föður hennar í greind, þýðir það samt alls ekki að þau eigi illa saman. Hann er faðir hennar og gefur henni það mikilvægasta sem foreldri getur gefið barni sínu; ást og nærveru. Þurfa börn meira frá foreldrum sínum? Er algengt að þau fái það?

Leikur Sean Penn er stórfenglegur. Ég trúði því að hann væri Sam, - hver einasta hreyfing og látbragð segir að hann sé Sam, því trúi ég þegar Sean Penn segir: "I am Sam" að hann sé Sam. Michelle Pfeiffer er aftur á móti í klisjukenndara hlutverki, og maður á bágt með að trúa hennar breytingum - þær eru ekki jafn eðlilegar og trúverðugar og það sem Sam gengur í gegnum; einnig er Dakota Fanning stórgóð. Einnig er skemmtilegt hvernig Bítlalögum í nýstárlegum flutningi er skeytt inn í myndina á vel völdum stöðum.

Myndin er hreint afbragð, stýrir framhjá allri væmni, tekur traust á vandamálinu - hvað gerir foreldri þegar stjórnvöld taka barnið - og það af vafasömum ástæðum? Hvernig getur varnarlaus manneskja varið sig? Hver getur metið hvað er börnum betra en ást?

Áhugavert er hvernig þroskaskertu einstaklingarnir virðast vera greindarskertir í hugsun, en snillingar á tilfinningasviðinu, en hinir 'heilbrigðu' aftur á móti virðast vera sneiddir tilfinningagreind, þrátt fyrir töluverða, en samt takmarkaða og afvegaleidda gagnrýna hugsun, fyrir utan Randy Carpenter (Laura Dern) sem hefur mikinn áhuga á að ættleiða Lucy Diamond.

Að lokum, viskukorn frá Sam, um ástina og af hverju faðir og dóttir sem elska hvort annað eiga að vera saman: " OK, remember when Paul McCarthney wrote the song "Michelle" and then he only wrote the first part, Annie said. And then he gave that part to John Lennon, and he wrote the part that said, "I love you, I love you, I love you." And Annie said that it wouldn't have been the same song without that... and that's why the whole world cried when the Beatles broke up on April 10, 1970."

Bloggvina mín benti mér á þessa mynd. Ég labbaði út á leigu en hún var bara til á spólu, en þar sem ég vil sjá myndir í widescreen fór ég alla leið í James Bönd vídeóleiguna, en þeir áttu eintak af henni þar. Í þakklætisskyni set ég inn myndskeið úr myndinni við gamalt og gott Bítlalag You've Got to Hide Your Love Away.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: arnar valgeirsson

ég hef ekki séð myndina og ætlaði reyndar bara að sleppa henni, fannst eitthvað væmið og klisjukenndur kanafílingur yfir henni. á samt eflaust eftir að kíkja á, enda er Sean Penn algjör snillingur, hvort sem er fyrir framan eða aftaf vélarnar. Svo á hann fallegustu eiginkonu hér á jörð, hana fröken princess bride (og gaman væri að sjá blogg um þá mynd). Og að lokum til hamingju með sigurinn þarna um daginn, alltaf gott að fá pizzu! Nú og með ríkisstjórn sem virðist ætla að verða, þér en ekki mér að skapi!!!

arnar valgeirsson, 19.5.2007 kl. 01:03

2 Smámynd: Hafrún Kristjánsdóttir

Gott að þér líkaði myndin.  Ég er enn að velta fyrir mér endinum.  Hefði verið siðferðislega rétt að láta Sam ala upp barnið?  Er siðferðislega rétt að taka börn af foreldrum sem veita þeim ást og umhyggju en eru skert á einhvern hátt?  Ég held að millivegurinn þarna sé það eina rétta í stöðunni, láta þá skertu ala upp sín börn en bjóða upp á ótakmarkað aðgengi að hverskins aðstoð.  Takk fyrir myndbandið :)

Hafrún Kristjánsdóttir, 19.5.2007 kl. 01:41

3 Smámynd: Hrannar Baldursson

Arnar: þakka kærlega. Ég á nú Princess Bride í safninu og gæti hæglega tekið hana fyrir fljótlega.

Hafrún: veruleikinn getur verið napurlegur, eins og lögfræðingur barndaverndarstofnunar, Mr. Turner (Richard Schiff) kom svo vel til skila, - vandamálið við hann var að hann var orðinn samdauna reynslu sinni og réttarkerfinu, og var farinn að alhæfa um mál sem má alls ekki alhæfa um. Hann gat ekki vitað það sem áhorfendur vissu, hvað Sam var frábær faðir, og hann hefði ekki getað trúað því vegna þess að flest mál sem hann hefur fengið á borðið (líklega) eru réttlætanleg. Sam hefði getað séð algjörlega sjálfur um uppeldi dóttur sinnar og með smá aðstoð væri staðan í góðu lagi. Þarna gæti stóra spurningin verið um forræðishyggju: hvenær að hún sé réttlætanleg, hvað þarf málið að vera alvarlegt til að sundra fjölskyldu? getur ástasamband verið það óheilbrigt fyrir viðkomandi að réttlætanlegt sé að stía þeim í sundur? hvenær er rétt að grípa inn í málin: áður en eithvað alvarlegt gerist eða eftir að eitthvað sem gerst hefur veldur varanlegum skaða? Það er nefnilega ekkert eitt svar við þessu almennt; þó að við séum sammála um hvað svarið skuli vera fyrir Sam og dóttur hans. 

Hrannar Baldursson, 19.5.2007 kl. 09:13

4 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Ég ætla endilega að kíkja á þessa mynd. Mér nennti ekki að sjá hana á sínum tíma því ég var viss um að þetta væri ekta „tearjerker“ að hætti Kana en það er greinilega meira í hana spunnið en svo.

Steingerður Steinarsdóttir, 19.5.2007 kl. 17:53

5 identicon

Ég er sammála um þessa mynd, ótrúlega góð og Sean Penn er alger meistari. En gaman að skoða þennan lista yfir bíólögin, og ég verð brjálaður ef Toy Story lagið verður ekki þarna

Oddur Ingi (IP-tala skráð) 19.5.2007 kl. 18:08

6 identicon

Sancho á ekki orð.

Penn er frábær leikari sbr. í M. River, Carlitos Way, Dead Man Walking o.s.frv. En hér verð ég að vera ósammála, I Am Sam er með verri myndum sem ég hef séð miðað við caliber í leikurum, leikstjóra, handritshöfundum og budgeti. Mér langaði að gráta, ogþað var ekki af því að Penn var svo mikið krútt.

Hafliði Ingason (IP-tala skráð) 19.5.2007 kl. 21:45

7 Smámynd: Hrannar Baldursson

Haflið: þú veist nú að ég er svolítill Sam í mér. Hef gaman af bítlunum og skil aðstöðu hans nokkuð vel.

Steingerður: Hún féll allavega í kramið hjá mér, en vissulega segir hún söguna frá einu sjónarhorni þegar sanngjarnara væri að sýna dýpri baksögu. En hún virkar. I am Sam er eiginlega Kramer vs. RainMan.

Oddur Ingi: Við erum svo oft sammála að það mætti halda að við værum skyldir! 

Hrannar Baldursson, 19.5.2007 kl. 22:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband