Minnst 26220 manns vilja leiðréttingu á lánum heimila og afnám verðtryggingar

Þetta er fjöldi undirskrifta hjá Hagsmunasamtaka Heimilanna.

Þetta eru undirskriftir gegn ranglæti.

Það er ranglátt að sparnaður þeirra sem fjárfestu í heimilum og tóku húsnæðislán hafi breyst í óviðráðanlegar skuldir.

Það er ranglátt að lán margfaldist þrátt fyrir stöðugar afborganir. 

Góður vinur minn sem missti húseign sína þurfti að leigja íbúð. Þannig að hann, ásamt konu og börnum fluttu í minna húsnæði. Fyrir viku kemur í ljós að eigandi íbúðarinnar stendur í skilnaði. Þar af leiðandi ætlar hann ekki að leigja íbúðina lengur. Vinur minn hefur þrjá mánuði til að koma sér út. Börnin enn í skóla og erfitt að finna leigu á sama svæði.

Hvernig getur nokkrum manni dottið í hug að betra sé að koma á leigukerfi heldur en að fólk geti eignast eigið húsnæði? Jú. Það er gamall draumur hins gamla kommúnistadraugs. Það óhugnanlega er hversu auðvelt virðist að sannfæra Íslendinginn um að jöfnuður öreiganna sé einhver jöfnuður yfirhöfuð.

Mig grunar að þeir sem skrá sig ekki á þennan undirskriftalista misskilji ástandið, haldi að þeir sem vilja leiðréttingu vilji taka frá hinum sem hafa varið sínu fé skynsamlega. Það er ekki raunin. Það hefur lengi þótt skynsamleg ráðstöfun með fé að kaupa sér húseign. Hins vegar bjuggust lánþegar ekki við hruni og að verðbólgan yrði ýfð upp innanfrá, til að fámennar hendur gætu ryksugað upp allar eigur lánþegar, annars gert þá gjaldþrota.

Fólkið inni á Alþingi virðiðst því miður ekki skilja þessi mál. Hugsanlega vegna þess að flest eru þau í hópi fólks sem þurfti ekki að taka þessi lán til að eignast eigið húsnæði.

Reyndar væri áhugavert að kanna hversu margir af þeim á þingi sem tala gegn "eignastefnu" á heimilum, eiga sitt eigið heimili. Það kæmi mér á óvart að ein einasta af þeim manneskjum sem þar sitja séu með heimili sitt á leigu. 

Það væri óskandi að ráðamenn víkkuðu aðeins sjóndeildarhringinn, og hættu að æsa sig um málin í innantómum frösum, og færu að gera eitthvað af viti. En af biturri reynslu veit ég að þetta er óskhyggja ein, veit að fyrir fyrirhuguð mótmæli 1. október mun ríkisstjórnin kasta einhverju beini til fjöldans til að róa hópinn, og takast það, enda margir snjallir spunameistarar þar um borð sem telja sig vita að múgurinn er fífl.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nú er kommúnistadraugurinn búinn að endurreisa bankakerfið. Friðrik Sophusson orðinn stjórnarformaður Íslandsbanka, Þorsteinn Pálsson stjórnarformaður MP banka. Hvað vilja menn meira?

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 6.9.2011 kl. 06:42

2 Smámynd: Hrannar Baldursson

Bankakerfið er nú varla mikið endurreist. Mig grunar að nær sannleikanum sé að það sé á ný að hruni komið.

Hrannar Baldursson, 6.9.2011 kl. 18:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband