Vissir þú að landflótti skiptir ekki lengur máli, svo framarlega sem að nýtt líf fæðist í staðinn fyrir þann sem fór?

utlaginn_901833.jpg

Steingrímur J. Sigfússon virðist boða himneskt eða náttúrulegt réttlæti þegar hann minntist á það í ræðu að við ættum ekki að láta svartsýni ná tökum á okkur, og tók sem dæmi að fréttamiðlar birtu fleiri fréttir um mögulegan landsflótta heldur en mikinn fjölda fæðinga og þar af leiðandi fjölgunar á Íslandi. Hvað ef í stað fréttar um að stúlku hafi verið nauðgað í Þórsmörk væri sagt: "en hugsaðu þér allar stúlkurnar sem sluppu, af hverju er ekki sagt frá þeim?" Eða í stað þess að fjalla um flugvélina sem fórst, eða húsið sem brann, af hverju ekki að fjalla um allar flugvélarnar sem fórust ekki, eða öll húsin sem hafa ekki enn brunnið?

Þetta eru skilaboðin á degi þar sem sjálft Alþingi Íslendinga samþykkir að borga skuldir óreiðumanna með blóði íslenskrar framtíðar, með því að samþykkja skuldabyrðina sem fylgir ICESAVE, hvort sem að fyrirvarar eru á pappír eða ekki. Þegar 10 manns á veitingastað er réttur reikningur og einn segist ætla að taka hann, borgar hann og ætlar síðan að rukka félaga sína, þá verður hann kannski hissa þegar hann fær ekkert í staðinn, enda vinir hans þekktir fyrir það eitt að hafa af honum peninga. Vandinn er bara sá að það mun sjálfsagt kosta meira að ná peningnum til baka en að sleppa því yfir höfuð.

 


 

Ég er hræddur um að Alþingi hafi í dag, ásamt ríkisstjórn Íslands, dæmt hundruð eða þúsundir saklausra Íslendinga í útlegð - í ferðalag sem þeir munu aldrei ljúka, hvort sem þeim líkar betur eða verr. Því miður er ég ekki að dramatísera hlutina.

Þeir atvinnulausu eru fyrstir til að fara úr landi því þeir hafa engu að tapa og eignir þeirra að hverfa hvort eð er. Ég velti fyrir mér hvort að fjöldi atvinnulausra á Íslandi hafi fækkað svo hratt vegna þess að þeir atvinnulausu flytja einfaldlega úr landi og eru teknir af atvinnuleysisskrá nema þeir fái atvinnuleysisréttindin flutt með sér, til þriggja mánaða - og hverfa eftir það sjálfkrafa af skrá, eins og þeir hafi aldrei verið til, eða hafi í það minnsta aldrei átt skilið að vera til. Eða er allt þetta fólk sem hefur verið sagt upp á síðustu mánuðum fengið ný störf?

Ég leyfi mér að efast.

 


 

Sjálfsagt skiptir þessi pæling mín engu máli, því að barn hefur örugglega nýlega fæðst á Íslandi, og ætti ég sjálfsagt að einbeita mér að því að samgleðjast þjóðinni yfir þeirri gjöf, eða kannski samhryggjast barninu vegna þeirra skulda sem það erfir vegna þess eins að það er íslenskt?

Annars þótti mér merkilegt í dag hversu fáir alþingismenn gerðu grein fyrir atkvæði sínu. Ég hefði haft áhuga á að heyra rök allra þeirra sem greiddu atkvæði með eða á móti samningnum, sem og þeim mikla fjöldi sem skilaði auðu. Ég skil ekki hvernig fólk með sómakennd getur greitt atkvæði með slíkum samningi, né skil ég fólk sem getur setið hjá. Nema þá í mesta lagi skilið að þetta fólk telji sig vera klókt. Hins vegar skil ég vel þá sem samþykkja engan veginn að taka á sig eða þjóðina ábyrgð einkarekins fyrirtækis sem rekið var skelfilega illa og fór á hausinn í útlöndum, en var svo heppið að hafa íslenska eigendur. 

Kannski þau sem samþykktu samninginn, með fyrirvörum, hafi verið að gera hið eina rétta í stöðunni að eigin áliti, í þeirri veiku von að lánadrottnar þjóðarinnar muni sýna meiri vilja til að dæla lánsfé inn í landið og að hindranir til umsóknar í Evrópusambandið falli niður eins og nýklipptir lokkar. Á meðan brenna heimilin. Skortur eykst. Ef svo er, þá er um að ræða stórhættulegt bjartsýni á velvilja þjóðar sem beitt hefur Ísland hryðjuverkalögum - sem eru lög beitt gegn óvinaríki, og gert er ráð fyrir þessum velvilja áður en stríðsöxin hefur verið grafin.

Fyrir utan þetta og með Haga þjóðarinnar í huga, hvað ætli séu til miklar birgðir af næringarríku fæði í íslenskum matvöruverslunum?

 


 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Kartöflurnar duga víst til áramóta, þá þurfum við að fara að flytja inn kartöflur.  Þessi íslenska verðrátta er ekki að hjálpa okkur, næturfrost í júlí er ekki gott í kreppu...

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 29.8.2009 kl. 02:03

2 identicon

Hvet þig til að senda þennan pistil til allra þingmanna, um leið og ég þakka þér fyrir hann.

Guðrún (IP-tala skráð) 29.8.2009 kl. 04:44

3 Smámynd: Hrannar Baldursson

Jóna Kolbrún: Kartöfluskortur? Maður hefur heyrt um annað eins úr sögunni, og er sagan ekki dæmd til að vera endurtekin?

Guðrún: Hver sá sem les þessa grein, sem og aðrar sem ég blogga, má dreifa þeim en þarf aðeins að geta höfundar. Fyrst að Mogginn gerir það, mega lesendur mínir gera það líka. Efnið er höfundarvarið aðeins að því leyti að nafn mitt er bundið efninu. Detti þér í hug að ljósrita, prenta, eða flytja skrif mín á einhvern hátt, er þér velkomið að gera það. :)

Hrannar Baldursson, 29.8.2009 kl. 08:05

4 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Flottur pistill Hrannar !

.. ekki græðir Steini J þá á mér, því ég er farinn til noregs á þriðjudaginn.. og sennilegast fylgir eitthvað af börnunum með, sem eru uppkominn í kjölfarið.

Óskar Þorkelsson, 29.8.2009 kl. 08:32

5 identicon

Það sem skiptir máli er hvað eru margir sem greiða skatta í dag. Nýfæddir borga slíka ekki fyrr en eftir um 25 ár !!

Staðreyndirnar tala sínu máli. Fjöldi þeirra sem greiða staðgreiðslu á Íslandi fækkar mjög mikið þessa dagana. Þannig hafa um 22.000 manns fækkað á staðgreiðsluskrá (http://andrigeir.blog.is/blog/andrigeir/?offset=20). Þetta er það sem skiptir máli.

Björn Kristinsson (IP-tala skráð) 29.8.2009 kl. 11:35

6 Smámynd: Don Hrannar

Óskar: velkominn til Noregs. Maður er farinn að heyra íslensku hljóma víða þegar maður skreppur í bæinn. Búinn að fá vinnu?

Björn: Athyglisvert. Þetta vissi ég ekki.

Don Hrannar, 29.8.2009 kl. 11:44

7 Smámynd: Óskar Þorkelsson

takk fyrir það Hrannar, nei hvorki vinnu né húsnæði :)  En þú ertu kominn í vinnu ?

Óskar Þorkelsson, 29.8.2009 kl. 12:35

8 Smámynd: Lilja Skaftadóttir

Þetta er alveg frábærlega vel skrifað og hlýtur að vekja til umhugsunar hvað sem manni finnst annars um þennan hræðilega samning.

Lilja Skaftadóttir, 29.8.2009 kl. 23:25

9 Smámynd: Hrannar Baldursson

Óskar, ég er enn atvinnulaus þrátt fyrir að hafa sótt um yfir 200 störf, en hef þó komist í nokkur viðtöl. Það er gífurleg samkeppni um störfin hérna og oftast sækja í það minnsta hundrað manns um hvert starf.

Lilja: takk. Verst hvað fáir lesa þetta aðrir en þeir sem eru þegar á sömu skoðun.

Hrannar Baldursson, 30.8.2009 kl. 07:01

10 Smámynd: Jón H B

Hrannar minn, þar sem ég eignaðist fimmta barnið mitt fyrir tæpri viku finnst mér eðlilegt að ég fái greitt af þessum lánum s.s. eins og 4% af vergri sko ..... penninn þinn leikur í höndum þér eins og alltaf. Haltu því áfram.

Kveðja jonhb

Jón H B, 30.8.2009 kl. 12:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband