Skal rannsaka umsvifalaust hagsmunatengsl þeirra sem ófrægja Evu Joly?

Ofurbloggarinn Lára Hanna hefur reynst þjóðinni sem ljósgeisli í þoku kreppunnar. Enn einu sinni skrifar hún grein sem er margfalt betra en flest það sem kemur úr íslenskum fjölmiðlum, enda snýst aðferð hennar um gagnrýna samantekt á efni fjölmiðla og blogga, sem hún síðan notar til að komast að vel rökstuddri niðurstöðu.

Ljóst er að hún ber fyrst og fremst hagsmuni þjóðarinnar fyrir brjósti. Hún hefur hjartað á réttum stað. Hún fær ekkert borgað fyrir það. Hún er þjóðin. Lesið grein hennar hérna.

Ég tek undir stuðning hennar og Hagsmunasamtaka heimilanna við Evu Joly sem sagði sjálf, áður en hún hóf störf fyrir íslensku þjóðina, að reynt yrði að ófrægja hana og gera störf hennar vafasöm á einhvern hátt. Þessar raddir eru farnar að hljóma, en virka þveröfugt. Í stað þess að vekja vafa á Evu Joly, vekja þær strax vafa á þeim sem talar gegn henni, og athygli þeirra sem rannsaka spillinguna og hrunið hlýtur því að beinast að hagsmunatengslum viðkomandi aðila.

Ég efast samt um að allir sem hallmæli Evu Joly séu að fela eitthvað. Sumt fólk getur einfaldlega verið tortryggið eftir klúðrið og spillinguna sem er að fljóta upp á yfirborðið. Tortryggni er eðlileg afleiðing svika og eðlilegt að fólk treysti ekki auðveldlega aftur í blindni.

Það er merkilegt hvernig bloggið er að sýna gildi sitt í þessu umróti. Bestu bloggararnir, sem fá engin laun fyrir skrif sín og skrifa án sérhagsmuna upplifa líka stöðuga ófrægingu. Í daglegri umræðu er oft talað um bloggara með niðrandi tón, kannski vegna þess að mikill fjöldi þeirra vandar sig ekki, og kannski vegna þess að hugtakið er enn frekar nýtt í íslensku samfélagi. Það er eins og fólk efist um ágæti bloggsins, rétt eins og sumir efast um ágæti Wikipedia vefsins - sem hefur reynst öflugri en sjálf Britannica með réttri notkun, - enda þeim vef afar vel stjórnað.

Ófræging mun eiga sér stað gegn öllum þeim röddum sem hrópa gegn óréttlætinu. Ég get ímyndað mér að fólk sem hafi hagsmuni að gæta segi um blogg Láru Hönnu: "Tja, hún er nú bara bloggari. Þú veist hvernig bloggarar eru..."

Ég bið lesendur að hugsa gagnrýnið um þessar gagnrýnisraddir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þú hittir naglann á höfuðið í öllum atriðum. Blogg Láru Hönnu er ljóst dæmi um það að heiðarleg hugsun stendur sjálf fyrir sínu án stunings valds eða átoritets.

Sigurður Þór Guðjónsson, 14.6.2009 kl. 18:04

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Til að skilja hvað er á ferðinni hér, þá mæli ég með bókinni "Flat earth news" sem fjallar um Pr og spunafræði í fjölmiðlum. Sláandi lesning. Hér eru spindoktorarnir nánast búnir að yfirtaka fjölmiðla landsins. 

Það sem er á ferðinni hér er skólabókardæmi um spunameistara, lygar, hálfsannleik, þöggun og allt það er vegur að grunni lýðræðis. Þessir meistarar eru svo einnig í vinnu hjá þeim, sem eiga fjölmiðlana og ástandið í þessu verra en nokkurstaðar í vestrænum heimi. Þeir eru í bókaútgáfunni um hrunið og smeygja sér inn í Pressuna og Eyjuna og allstaðar sem þeir komast. Það er greinilega um strategíska árás á almenningsviðhorfin að ræða.

Jón Steinar Ragnarsson, 14.6.2009 kl. 20:02

3 Smámynd: Þór Ludwig Stiefel TORA

Ef að ekki er farið að ráðum Evu Joly þýðir það bara eitt - akkúrat það sem hún gaf í skyn í Kastljósinu um daginn - þá er ekki nein alvara með því að rannsaka bankahrunið. Auðvitað eru margir sem hafa engan hag af því að þjóðin komist til botns í málinu. Það verður að hafa það í huga að ALLIR sem aðstöðu höfðu til tóku þátt í sukkinu og bera einhverja sök á því hvernig fór. Við erum að tala um elítu Íslands eins og hún leggur sig: forseta, ráðherra, þingmenn, embættismenn, forstjóra, bankamenn, lífeyrissjóðafólk og peningamenn.

Var einhver að halda því fram, í barnalegri einfeldni sinni, að rannsókn á því hvernig fór yrði blátt áfram og einföld? Vill kannski einhver segja það, svona fyrirfram, að réttlæti nái fram að ganga að rannsókn lokinni? Við erum að nokkru leiti í sömu að stöðu og þjóðverjar í lok seinna stríðs - nánast öll þjóðin tók þátt í nasismanum, annaðhvort beint eða óbeint eða með stuðningi eða þögn. Hvaða lögfræðingi er hægt að treysta í dag? Hvaða embættismanni? Hvar er þann að finna sem ekki hefði ákafur kastað sér út í sukkferðina hefði hann átt þess kost?

Þess vegna var svo mikilvægt að fá utanaðkomandi aðila til að taka þátt í rannsókninni (helst stjórna henni). Þess vegna er svo mikilvægt að almenningur krefjist þess að á Evu sé hlustað og að eftir ráðum hennar sé farið. En vitið það - þeir sem ráða hafa ENGAN áhuga á að hið sanna komi í ljós og að menn sæti ábyrgð - að sjálfsögðu ekki.

Þór Ludwig Stiefel TORA, 14.6.2009 kl. 22:10

4 Smámynd: Sjóveikur

Gott hjá þér Hrannar, mjög gott  þú ert einn af þeim sem gera bloggið að því sem það á að vera, áhugavert og fræðandi, mínar stærstu þakkir fyrir og haltu áfram svona, gott fyrir svona eins og mig sem beita skapinu of mikið, að fá upplýsingar sem hjálpa manni að skilja betur hvað er á seiði á okkar guðsvolaða landi  bestu þakkir.

Byltingar kveðjur á öllum sviðum, sjoveikur

Sjóveikur, 14.6.2009 kl. 22:47

5 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Þegar ég skoða hverjir hafa gagnrýnt Evu Joly, fyllist ég trausti á henni.  Hún er ábyggilega besta manneskjan til þess að rannsaka hrunið, og fólkið sem hún mælir með. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 14.6.2009 kl. 23:39

6 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Hrannar og þið hin ég segi bara af eigin reynslu að bloggið hefur áhrif og vekur upp viðbrögð. Ekki alltaf þau sem maður vildi eða réttara sagt reiknaði með og langt frá því þau séu alltaf þau sem maður hefði óskað sér! En það virkar það er engum vafa undirorpið!

Rakel Sigurgeirsdóttir, 15.6.2009 kl. 03:17

7 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Tek undir hvert orð hér....við verðum svo öll að taka höndum saman..bæði hér á blogginu og úti í samfélaginu og standa vörðinn um þá sem eru að vinna hörðum höndum að upplýsa um spillinguna og veja athygli á öllu óréttlætinu sem hér líðst og hefur liðist. Ragnar Þór er einn af þessum frábæru bloggurum sem eru að standa vaktina. Allt þetta fólk á skilið að við stöndum með því...

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 15.6.2009 kl. 11:16

8 identicon

Ég held að blogg t.d. Láru Hönnu hafi hreinlega verið nokkurskonar áfallahjálp fyrir þjóðina eftir hrunið. Hún á miklar þakkir skildar einnig þú og fleiri sem blogga. Veit að margir sem búa erlendis fylgjast vel með bloggi Láru Hönnu því það er nokkurskonar samviska þjóðarinnar eða þannig! Hún setur einnig inn upptökur af fréttnæmu efni sem er alveg ómetanlegt fyrir t.d. fólk sem vinnur vaktavinnu.Ég hef spurt sjálfa mig óteljandi sinnum hvar þjóðin væri eiginlega ef við þyrftum bara að treysta á lélega fjölmiðla landsins? Þá væri aldeilis þöggun í gangi !

Sannleikurinn mun koma í ljós einmitt vegna þess að við eigum fólk sem bloggar !!!!!! TAKK

Ína (IP-tala skráð) 15.6.2009 kl. 12:54

9 identicon

Ólína Þorvarðardóttir:

Hitt finnst mér umhugsunarefni - hafi ég tekið rétt eftir - að Eva Joly skuli frekar mæta í sjónvarpsviðtal til að koma athugasemdum sínum á framfæri heldur en að tala við þar til bær yfirvöld. Er hún fyrst að benda á þessa vankanta núna? Sé það tilfellið  - af hverju dró hún það svona lengi? Hvers vegna sneri hún sér ekki beint til dómsmálaráðuneytisins?

G (IP-tala skráð) 15.6.2009 kl. 21:09

10 identicon

Bloggvinur - drum 

yes siree!, Bob!!

DrumBoy (IP-tala skráð) 23.6.2009 kl. 19:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband