12 bestu kvikmyndir Christian Bale

terminatorsalvation

Terminator Salvation kemur fljótlega í íslensk bíó. Christian Bale leikur þar aðalhlutverkið, John Connor sem foringja uppreisnarmanna í framtíð þar sem vélmenni og gervigreind eru efst í fæðukeðjunni og markmiðið að útrýma mannkyninu.

Í snilldarmyndinni Terminotor eftir James Cameron var Arnold Schwarzeneigger sem vélmenni sent úr framtíðinni til að taka af lífi Sarah Connor, sem yrði í framtíðinni móðir John Connor.

terminator

Í Terminator 2: Judment Day fer Schwarzeneigger aftur til fortíðar sem vélmenni í leikstjórn James Cameron, en nú forritaður af sjálfum sér til að bjarga John Connor á unglingsaldri, og í leiðinni móður hans af geðspítala, en eftir þrettán ára flótta undan framtíðinni er hún orðin ansi pirruð.

t2

Terminator 3 er lakari kvikmynd en þær tvær fyrstu þar sem Schwarzeneigger kemur aftur sem vélmenni til að bjarga John Connor úr tilvistarkreppu vegna þess að líf hans hefur ekki lengur neinn tilgang, þar sem heiminum hefur ekki verið eytt. Því verður reddað.

t3

Ég hef ekki hugmynd um hvort Terminator Salvation verður snilld eða góð, eða einhvers staðar þar á milli eða neðar á skalanum, en mig langar að setja saman lista frá IMDB um þær kvikmyndir Christian Bale sem hafa fengið besta dóma á þessum besta kvikmyndavef veraldarvefsins.

Hæsta mögulega einkunn er 10:

1. (8.90) - The Dark Knight (2008)

Frægust fyrir að vera síðasta mynd Heath Ledger og afar vönduð ofurhetjumynd um Batman. Því miður koma gæðin svolítið niður á skemmtanagildinu, finnst mér.

darkknight

2. (8.40) - The Prestige (2006)

Christopher Nolan leikstýrir, en hann gerði líka Batman Begins og The Dark Knight með Bale. Mér fannst þetta því miður frekar þunnur þrettándi.

prestigebale

3. (8.30) - Batman Begins (2005)

Að mínu mati besta Batman myndin, en þarna er Batman endurræstur með hæfilega djúpu drama og góðum leik eftir hina hörmulegu Batman & Robin.

batmanbeginsbale

4. (8.28) - Terminator Salvation (2009)

Hef ekki séð hana, TS er næsta mynd sem ég mun sjá í bíó reikna ég með.

terminatorsalvationbale

5. (8.10) - Hauru no ugoku shiro (2004)

Howl's Moving Castle eða Hreyfikastali vælukjóans er þekktust fyrir að vera síðasta kvikmynd stórleikstjórans og Walt Disney þeirra Japana: Hayao Miyazaki. Hef ekki séð hana.

howl_s_moving_castlebale

6. (7.90) - Henry V (1989)

Afar vel gerð Shakespeare kvikmynd Kenneth Branagh um kóng sem er duglegur að hvetja sína menn áfram í stríði gegn Frökkum, minnir mig, langt síðan ég sá hana en fannst hún þá afar góð. Þetta var kvikmyndin sem átti að færa Shakespeare til nútímans, og það var árið sem Batman kom út.

henryvbale

7. (7.90) - 3:10 to Yuma (2007)

Stórskemmtilegur vestri með Russell Crowe og Bale í aðalhlutverki. Crowe er glæpon og Bale er bóndi sem tekur að sér það verkefni að flytja Crowe í fangelsi, hundeltur af glæpagengi Crowe, sem plaffar miskunnarlaust niður fylgdarhópinn, þar til aðeins Crowe og Bale standa eftir í uppgjöri aldarinnar.

310toyumabale

8. (7.80) - El maquinista (2004)

Drama um mann sem þjáist af svefnleysi eftir að hafa lent í alvarlegu bílslysi. Bale tók DeNiro á þetta og léttist um einhver 30 kíló fyrir hlutverkið. Myndin er samt góð.

el_maquinistabale

9. (7.80) - Equilibrium (2002)

Framtíðarbræðsla sem í einhvers konar Orwellheimi þar sem bækur eru bannaðar. Ekkert sérlega eftirminnileg.

equilibriumbale

10. (7.70) - Empire of the Sun (1987)

Fyrsta stóra hlutverk Bale í kvikmynd Steven Spielberg um dreng á stöðugum flótta í Japan síðari heimstyrjaldarinnar. Vel heppnuð og skemmtileg mynd.

empire-of-the-sun_bale

11. (7.60) - Rescue Dawn (2006)

Bale leikur flugmanninn Dieter sem er skotinn niður í Víetnam og leggur berfættur á flótta undan hermönnum gegnum regnskóg. Mjög góð og spennandi kvikmynd, byggð á sönnum atburðum.

rescuedawn

12. (7.40) - American Psycho (2000)

Bale leikur óhugnanlegan uppa á 8. áratugnum sem fær jafnmikið upp úr að hlusta á Wham og drepa fólk sér til gamans eftir vinnu. Koldimm kómedía.

americanpsychobale

Án nokkurs vafa áhugaverður leikari og leikferill, sem á helst á hættu að verða of stór fyrir eigin egó. Takist honum að ráða við þann hjalla, eru honum allir vegir færir.

Svo ég slengi líka einhverju fram sem hægt er að rífast um. Christian Bale er arftaki, ekki bara eins, heldur tveggja stórstjarna í kvikmyndaheiminum; þeirra Robert DeNiro sem dramakóngur, og Arnold Shwarzeneigger sem hasarkóngur.

Smelltu hér til að sjá sýnishorn úr Terminator Salvation


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Er búin að sjá Salvation , varúð ekki búast við of miklu , handrit vantar , en Bale klikkar ekki frekar en vanalega.

Sumarpoppkornsmynd

Ómar Ingi, 22.5.2009 kl. 16:33

2 Smámynd: ThoR-E

Þarna vantar algjörlega myndina Reign of fire , ein besta mynd Bale´s sem ég hef séð, algjörlega.

Kv.

ThoR-E, 22.5.2009 kl. 17:50

3 Smámynd: Guðmundur Sverrir Þór

Sæll Hrannar og velkominn til Skandinavíuskagans.

Eitt af bernskubrekum Christian Bale, sem ég sá ekki á þessum lista, er dans- og söngvamyndin Newsies sem segir frá baráttu blaðsöludrengja í Nýju Jórvík við sjálfan Joseph Pulitzer. Myndin er frá 1992 þegar Bale var 18 ára. Afar sjarmerandi og skemmtileg mynd og eftir að ég sá hana hefur drengurinn verið í miklu uppáhaldi hjá mér. 

Guðmundur Sverrir Þór, 23.5.2009 kl. 12:38

4 Smámynd: arnar valgeirsson

ekki séð líkt því allt með honum en hann er snilldarleikari og American Psycho er þvílík dúndurmynd. bara algjör snilld og sá hana aftur fyrir stuttu. atriðið með nafnspjöldin var dýrðlegt.

arnar valgeirsson, 24.5.2009 kl. 21:02

5 identicon

Blessaður

ég átti von á þér til landsins í mánuðnum - getur þú verið í sambandi við mig fjótlega.

Kv. Fríða Ág

Fríða Ágústsdóttir (IP-tala skráð) 25.5.2009 kl. 15:02

6 Smámynd: Hrannar Baldursson

Sæl Fríða,

Ég er kominn til landsins. Kíki til þín á morgun.

Hrannar Baldursson, 25.5.2009 kl. 17:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband