Hvar er réttlætið í þessu?

jail1

Saklaust fólk fangar á eigin heimilum en þrjótarnir frjálsir í leit að nýjum tækifærum.

Verðtrygging er tæki sem hefur verið misnotað. Í dag virðist hún notuð til að fjármagna nýja banka og eigendur verðtryggða skulda, á meðan fólk eins og Rakel Sölvadóttir þarf að borga þennan pening nánast beint inn á reikninga þeirra sem vilja fá sitt.

Stóra spurningin er hins vegar hvort að yfir 20% vextir af láni sem átti aldrei samkvæmt ráðgjöf í bönkum að fara yfir 8% sé réttlætanleg til innheimtu. Forsendur húsnæðislána hafa algjörlega brostið og því þarf að gera eitthvað í málunum strax. 

Í dag eru málin þannig að viljir þú borga af höfuðstól láns þarf að borga 2% uppgreiðslugjald aukalega, en fólk er að borga minnst 20% í ársvexti af sínum húsnæðislánum - og leggjast þessir vextir ofan á höfuðstól um áramót - sem þýðir að venjulegt fólk sem hefur tekið húsnæðislán til að eiga þak yfir höfuðið er ekki bara fangar í eigin húsnæði, það styttist í að það drukkni í skuldum sem yfirfærast á ættingja þeirra og ábyrgðarmenn takist ekki að finna úrræði.

 

logo_hh

Hagsmunasamtök heimilanna

Tillögur Hagsmunasamtaka heimilanna í þessum málum, sem haldið er uppi af fólki í sjálfboðavinnu, eru skynsamlegar og beinast að rót vandans. Því fleiri sem bætast í samtökin, því líklegra er að hlustað verði á þau af alvöru.

Það verður opinn fundur hjá samtökunum í kvöld kl. 20:00 að Borgartúni 3, og öllum velkomið að mæta. Dagskráin í kvöld er þannig:

  • Þór Saari, hagfræðingur, mun hafa framsögu um nauðsynlegar bráðaðgerðir í efnahags- og atvinnumálum.
  • Lilja Skaptadóttir heldur erindi um lýðræð.
  • Fyrstu tillögur Hagsmunasamtaka heimilanna um aðgerðir vegna kreppunnar verða kynntar. 
Samtökin eru að stækka á landsvísu, en á Akureyri verður samtímis haldinn fundur í Ketilshúsinu sem ber yfirskriftina ,,Heimilin á hrakhólum".  Ólafur Garðarsson, stjórnarmaður í HH mun hafa framsögu á þeim fundi.

Þú getur skráð þig í samtökin, án skuldbindinga, með því að smella hér.

mbl.is Föst í of lítilli íbúð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Góð spurning, best að skrá sig sem snöggvast.

Georg P Sveinbjörnsson, 12.2.2009 kl. 18:57

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Góð grein hjá þér strákur. Blessað unga fólkið sem trúði á gull og græna skóga.

Ásdís Sigurðardóttir, 12.2.2009 kl. 19:43

3 Smámynd: Ómar Ingi

Lífið er ekki réttlátt.

Ómar Ingi, 12.2.2009 kl. 20:20

4 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Þess meiri ástæða til að breyta því sem kostur er. Varla náttúrlögmál að lítill hópur fólks mergsjúgi restina og arðræni þó að það hafi viðgengist öld eftir öld.

Georg P Sveinbjörnsson, 12.2.2009 kl. 20:53

5 identicon

Við hjónin erum í nákvæmlega sömu stöðu. Við ákváðum að greiða inn á höfuðstólin á lánunum mánaðarlega, þrátt fyrir uppgreiðslugjaldsránið. Við réðum fyrirtækið Sparnað til að sjá um þetta fyrir okkur. Allir ríkisbankarnir neita að veita Sparnaði leyfi til að nota umboð okkar sem leyfir þeim að taka út af reikningnum okkar um hver mánaðarmót. Bankarnir gera það sem þeir geta til að koma í veg fyrir að fólk reyni að losna undan þessu oki. Ég er alveg brjáluð yfir þessu.

Hanna (IP-tala skráð) 12.2.2009 kl. 21:12

6 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Góð greining! Takk

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 12.2.2009 kl. 22:15

7 identicon

Sæll Hrannar, mikið er þetta rétt hjá þér varðandi verðtrygginguna. Maður veit vart hvernig hægt sé að réttlæta jafn gegnsætt RÁN og verðtryggingin er! Ingibjörg Sólrún vildi reyndar réttlæta gjörninginn með því að þetta væri lífeyrissjóðunum lífsnauðsynlegt en maður spyr á móti hvort það megi ræna mig og þig til að halda uppi öflugu lífeyrissjóðskerfi??? Verðtrygging er ekkert nema rán, hún er til þess fallin að ég skulda lánadrottnara mínum miklu meiri pening heldur en ég fékk nokkurn tímann lánaðan frá honum og er ég þó að greiða honum vexti! Mig langar taka lítið dæmi um hvernig verið sé að ræna okkur beint fyrir framan nefið á okkur: Ég tók milljón króna lán fyrir skömmu hjá lífeyrissjóð. Um síðustu mánaðmót greiddi ég 20.700 krónur af því og þar af 15.359 krónur af láninu sjálfu, vextir voru 3.638. Þetta þýddi svona ca. 15 tíma vinnu til að greiða þetta, eða svona um 2 vinnudaga. Höfuðstólinn var fyrir greiðslu 995.466 en var eftir greiðslu 993.849. Þetta þýddi að tveggja daga vinnan mín var í raun innan við 2.000 króna virði, þessir 15 tímar sem ég vann til að geta greitt lánið breyttist í ígildi einnar stundar! Ég hefði því átt að geta unnið eina  vinnustund til að lánið mitt hefði átt að standa í ef ég hefði ekki verið rændur daginn sem ég greiddi afborgunina! Hinir 14 tímarinir af vinnu voru því í raun verðlausir fyrir mig!

Ég held að mafían, hvar sem er í heiminum haldi ekki uppi eins bíræfnum, ósiðlegum og óheirðarlegum viðskiptaháttum og íslensk stjórnvöld gera með að viðhalda verðtryggingunni!

En það væri nú gaman að hittast við tækifæri og ræða málin

Kristbjörn H. (IP-tala skráð) 12.2.2009 kl. 23:58

8 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Óréttlætið og eignaupptakan byrjaði af alvöru þegar launavísitalan var afnumin.  Að hafa bara lánin verðtryggð en ekki launin er glæpur að mínu mati. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 13.2.2009 kl. 01:25

9 Smámynd: Heidi Strand

Það verður að breyta þessu strax!!!!

Heidi Strand, 13.2.2009 kl. 09:23

10 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Sæll Hrannar,

ein leið við útreikning vísitölu sem hefði átt að taka upp í haust eða jafnvel enn fyrr er þessi:

Eftir að útreikningur vísitölu mánaðarlega hefði/ætti að helminga hækkunina eða lækkunina þegar það á við þannig að allir væru að taka á sig afleiðingar verðbólgunnar.

Þeir sem skulda tækju á sig minna en ella og þeir sem eiga verðtryggðar eignir s.s. bankar, lífeyrissjóðir og einstaklingar tækju þar með allir á sig skerðingu, ekki bara þeir sem skulda verðtryggð lán.

Bestu kveðjur,

Tómas Ibsen Halldórsson, 13.2.2009 kl. 09:38

11 Smámynd: Hrannar Baldursson

Takk fyrir athugasemdirnar.

Það er ákveðin huggun í því að sjá hversu skýrt fólk er farið að sjá bölið sem verðtryggingin er.

Hrannar Baldursson, 13.2.2009 kl. 09:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband