Hvað gerir þú þegar þú hefur ekkert að gera?


Stolið úr eigin athugasemdum frá færslu gærkvöldsins, Lítum á björtu hliðarnar: 5 viskukorn...

Þegar ég hef ekkert að gera reyni ég að skilja heiminn örlítið betur, og er nokkuð innhverfur því að ég:

  • Reyni að átta mig dýpri hugsunum, bæði eigin og þeirra sem ég umgengst. Þoli illa spjall og baktal.
  • Tefli til að átta mig betur á rökhugsun og mannlegum karakter.
  • Les til að víkka sjóndeildarhringinn. Les skáldsögur af sama tilgangi og ég horfi á kvikmyndir.
  • Skrifa til að koma reiðu á eigin pælingar. Með slíkum pælingum dýpkar oft á skilningnum.
  • Horfi á kvikmyndir og hugsa um þær til að átta mig betur á eðli sögunnar, hvort sem er mannkynssögunnar, sögum úr lífi okkar eða lífið allt.
  • Bý til vefsíður.
  • Reyni að átta mig á hvernig hægt sé að bæta heiminn aðeins, og reyni að skilja hvernig við getum gert betur.
  • Stundum slæ ég þessu upp í kæruleysi og geri eitthvað allt annað, eins og til dæmis ekkert, en þá vakna bara nýjar hugmyndir.

Hvað um þig?

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Hrannar, góð bók er oft besta aðferðin til þess að  hvíla sálar- og hugartetrið. 
Ég er líka innhverf og hef tilhneigingu til þess að pæla of mikið í vandamálum allrahanda en lesturinn er eina flóttaaðferðin sem dugir mér.
Það versta er að gera ekki neitt -  þá fyrst fara þessar gráu á fullt. 

Kolbrún Hilmars, 26.11.2008 kl. 23:19

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Jú, jú, ég á það líka til að vera fámáll og afundinn.

Magnús Sigurðsson, 26.11.2008 kl. 23:31

3 identicon

Eftir því sem ég eldist finnst mér örva heilavirknina að tala við fólk. Að spjalla við nánast hvern sem er. Máta saman hugsarnir, heyra í heila annarra. Lesa til að slaka á, ljóða til að fá dýpt og tengja saman tilfinningar og hugsun.

Rósa (IP-tala skráð) 29.11.2008 kl. 23:52

4 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég geri vefsíður... 

Gunnar Helgi Eysteinsson, 2.12.2008 kl. 19:01

5 Smámynd: Óskar Þorkelsson

ég spila battlefield á netinu :).. og blogga

Óskar Þorkelsson, 3.12.2008 kl. 19:58

6 Smámynd: Villi Asgeirsson

Skrifa og les.

Villi Asgeirsson, 10.12.2008 kl. 09:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband