Góð leið til að eignast smá aukapening með Netinu

Það muna kannski margir eftir netbólunni sem sprakk um aldamótin, þegar allir voru að finna leiðir til að hagnast fljótt og auðveldlega á netinu. Það þarf mikla vinnu til, til að slíkt gangi upp. Hins vegar eru til einstaka góð tækifæri á netinu sem áhugavert er að skoða. Gróðinn er ekkert svakalegur, en þú getur eignast vefsvæði og fengið smá aukapening í leiðinni.

Þú getur fengið greitt fyrir það eitt að mæla með góðu netfyrirtæki og setja tengla til þeirra á vefsíður þínar. Fyrir hvern nýjan viðskiptavin sem kaupir áskriftarpakka hjá þeim, færðu greidda 65 dollara. (Þeir senda ávísun þegar upphæðin er komin yfir 500 dollara). Þetta hljómar kannski of gott til að geta verið satt. En þetta er satt. Ég hef fengið minni fyrstu ávísun skipt, og kemur hún sér ágætlega á þessum síðustu og verstu tímum þegar öll lán hafa hækkað margfalt meira en bankarnir lofuðu þegar lánin voru tekin.

Það sem þú þarft að gera til að komast í þennan félagsskap er að smella á  Lunarpages eða fara á lunarpages.com og kaupa þér lén með endingu eins og til dæmis .com, .net eða .org. Með fylgir vefsvæði upp á 1500 GB og með hraðri nettengingu. Mánaðargjaldið er um kr. 400,- 

world-wide-web

Það þarf að kaupa pakka til eins eða tveggja ára til að fá þessi kjör. Með í pakkanum fylgir fullt af forritum sem gera manni auðvelt að búa til vefsíður, bloggsíður, wikisíður, vefverslanir, spjallborð, og ýmislegt annað frá grunni, og auk þess fær maður boð um að gerast félagi (affiliate) þar sem maður fær greidda 65 dollara fyrir hvern nýjan viðskiptavin sem smellir á tengilinn.

Ég er búinn að smíða nokkrar vefsíður sjálfur:


Ef þú smellir á þennan link og kaupir þér pakka frá Lunarpages fæ ég þóknun fyrir viðskiptin upp á 65 dollara. 

 

Hérna fyrir neðan er dæmi um auglýsingaborða frá Lunarpages, sem hægt er að setja upp á vefsíðurnar.

Lunarpages.com Web Hosting

 

Mynd af netleiðslu: goEmerchant

Mynd af veraldarvef: Do You Hear The Sound - There is a wind coming!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Ómar Ingi, 18.7.2008 kl. 11:04

2 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Jáhá. Þetta er eitthvað sem maður þarf að skoða.

Steingerður Steinarsdóttir, 18.7.2008 kl. 11:15

3 Smámynd: Hrannar Baldursson

Jú jú, Ómar. Ég var búinn að skrifa þessa grein í fyrradag, en fannst hún ekki nógu góð. Er búinn að endurskrifa hana.

Steingerður: þetta er alls ekki vitlaust, svo framarlega sem þú hefur áhuga á að búa til þín eigin vefsvæði.

Hrannar Baldursson, 18.7.2008 kl. 11:25

4 Smámynd: Birna M

Mér finnst gaman að gera eigin vefsvæði og halda úti síðum. En ég er  orðin þreytt á tilboðum sem lofa manni hinu og þessu bara ef þú kaupir svo og svo stóran pakka hjá þeim. Það nýjasta var "rosasniðug netverslun", sem gerði svo bara útá nuskin og þú áttir að borga fimmtán þúsund kall á mánuði til að mega versla fyrir 65000 kall í búð sem þeir settu upp sem maska fyrir þetta. Mér finnst þetta trúlegra eins og þú setur það fram. ég veit vel að maður þarf að vera duglegur að auglýsa til að eiga möguleika en svo þegar margir eru komnir undir þig er ekkert meira pirrandi en þegar þeir eru allir að höstla á sömu auglýsingamiðlum og þú. En gangi þér vel, þetta er alveg þess virði að prófa.

Birna M, 18.7.2008 kl. 11:47

5 Smámynd: Hrannar Baldursson

Ég skil þig Birna. En ég færi aldrei að mæla með Lunarpages ef ég væri ekki himinlifandi með þjónustuna og gæðin frá þeim. Ég hef keypt hjá þeim fjölmörg vefsvæði, um kr. 400-600 á mánuði hvert þeirra, hef notað mörg af þeim tækjum sem fylgja ókeypis með, og er afar ánægður. Ég væri það líka þó að ég hefði ekki fengið allan peninginn sem ég hef sett í þetta til baka, en vissulega er hvetjandi að láta vita af þeim þegar maður getur fengið 5000 kall í vasann fyrir hvern nýjan kaupanda. Ég er fyllilega sáttur því að ég veit til þess að þeir sem hafa verið að kaupa þennan pakka, hafa verið ánægðir með kaupin.

Ég færi aldrei að mæla með einhverju sem ég myndi ekki kaupa sjálfur.

Hrannar Baldursson, 18.7.2008 kl. 12:00

6 Smámynd: Hrannar Baldursson

Hinricus: Þú hefur semsagt ekki tekið sumartilboðinu og borgar því fullt verð, kr. 583,- á mánuði.

Hvernig líkar þér annars við þjónustuna og gæðin?

Hrannar Baldursson, 18.7.2008 kl. 12:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband