Ned Kelly (2003) ***

Ned Kelly (Heath Ledger) er bóndasonur í Ástralíu af írskum uppruna. Hann er handtekinn fyrir ađ stela hesti sem hann stal ekki, og fyrir ađ lemja lögreglumann sem skaut ađ honum af engu tilefni. Fyrir ţetta ţarf Kelly ađ dúsa ţrjú ár í fangelsi.

Ţegar hann sleppur út taka á móti honum besti vinur hans, Joseph Byrne (Orlando Bloom) og bróđir (Dan Kelly). Ţeir félagar hefja hrossarćkt sem gengur ljómandi vel. Ned kemst í kynni viđ gifta konu, Julia Cook (Naomi Watts) og fljúga neistar og fleira milli ţeirra. Ţegar Ned er ásakađur fyrir ađ hafa skotiđ á lögregluţjón ţarf hann ađ leggja á flótta. Ţar sem ađ ásökunin er hreinn uppspuni reikna ţeir félagar međ ađ málinu verđi lokiđ á fáeinum dögum.

En lögreglan handsamar móđur Ned og stingur henni í steinnin ţar sem hún fćr ađ dúsa í nokkur ár. Lögreglumenn ráđast ađ Ned og félögum hans, og í sjálfsvörn drepa ţeir ţrjá ţeirra. Ţetta verđur til ţess ađ safnađ er saman heilum her lögregluţjóna til ađ hafa uppi á ţeim félögum.

Ţar sem ađ Kelly og félögum hefur veriđ stuggađ út í horn, rćna ţeir banka og koma peningunum til fjölskyldna sem hafa veriđ beittar órétti af lögreglunni og segja sína sögu öllum ţeim sem vilja heyra. Ţeir öđlast fádćma vinsćldir. Enda minna ţeir töluvert á Hróa Hött og félaga.

Fyrir her lögreglumannanna fer Francis Hare (Geoffrey Rush) sem heitir ţví ađ gera allt sem í hans valdi stendur til ađ drepa ţessa harđsvíruđu útlaga.

Hinn nýlátni Heath Ledger sýnir stórgóđan leik í túlkun sinni á Ned Kelly, ástralskri ţjóđsögu sem hefur veriđ gert skil af fjölmörgum öđrum leikurum, međal annars af Mick Jagger úr Rolling Stones áriđ 1970 og í grínmynd međ Yahoo Serious áriđ 1993.

Ţó ađ persónusköpun annarra en Ned Kelly sé frekar yfirborđskennd, tekst vel ađ búa til kvikmynd sem minnir helst á Braveheart af öllum myndum, enda eru ţemun ekki ólík. Ég viđurkenni fúslega ađ ţađ vantar töluvert upp í ađ Ned Kelly teljist klassísk mynd, en Ledger er fantagóđur.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurđardóttir

Flott úttekt á ţessari mynd. Takk fyrir ţađ.  Ţađ er eftirsjá í piltinum ekki spurning.

Ásdís Sigurđardóttir, 5.2.2008 kl. 14:49

2 Smámynd: Ómar Ingi

No Comment

Ómar Ingi, 5.2.2008 kl. 17:59

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband