20 bestu bíólögin: 7. sæti, Time of My Life - Dirty Dancing, 1987

Karlmenn eiga erfitt með að viðurkenna að þeir hafi gaman af Dirty Dancing. Á yfirborðinu er hún svolítið kjánaleg. Unglingsstúlka sem kölluð er Baby fer í sumarfrí með foreldrum sínum. Á sumarleyfisstaðnum kemst hún að því að starfsfólkið er frekar villt og þegar það dansar er nálægð paranna mikil. Baby verður hrifin af einum úr hópnum, en hann kennir henni að dansa villt. Plottið þykknar. Inn í söguna blandast fordómar efri stétta gegn lágstéttum (og öfugt), tekið er á fóstureyðingum og mikilvægi þess að fá einfaldlega að vera maður sjálfur. 

Eftir langa og stranga danskennslu, og eftir að hafa komist yfir töluvert af vandamálum; sýna Baby og Johnny árangur sinn á sviðinu við mikla kátínu allra gesta. Það er sérstaklega mikilvægt að þeim takist að ná fullkomnu jafnvægi þegar hún stekkur oná hann, hann grípur hana og heldur henni yfir hausnum. Flott móment! Með dansinum komast allir í gott skap og öll illindi fyrirgefin. 

 

7. sæti, Time of My Life - Dirty Dancing, 1987

8. sæti, Moon River - Breakfast at Tiffany's, 1961

9. sæti, Do Re Mi - The Sound of Music, 1965 

10. sæti, Wonderful World - Witness, 1985

11. sæti, Bohemian Rhapsody - Wayne's World, 1992 

12. sæti, Summer Nights - Grease, 1978

13. sæti, Raindrops Keep Fallin' On My Head - Butch Cassidy and the Sundance Kid, 1969 

14. sæti, Twist and Shout - Ferris Bueller’s Day Off, 1986

15. sæti, "Supercalifragilisticexpialidocious" - Mary Poppins, 1964

16. sæti, Puttin' On The Ritz - Young Frankenstein, 1974 

17. sæti, Footloose - Footloose, 1984

18. sæti, Hakuna Matata - The Lion King, 1994,

19. sæti: Rawhyde úr Blues Brothers, 1980

20. sæti: Old Time Rock and Roll  úr Risky Business, 1983

 

Góða skemmtun!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gestur Guðmundsson sem kenndi mér félagsfræði kom í fyrirlestri inn á rannsókn á bíómyndum sem unglingar samsömuðu sér við. Hjá táningsstúlkum var það Dirty Dansing og hjá piltum var það Dead Poets Society. Ekki mikið af lögum í Dead Poets en ég ætla ekki að gagnrýna val þitt, minn listi mætti þó telja einhverja hundruði laga til að það kæmist á hann

http://youtube.com/watch?v=RBHZFYpQ6nc

Tevje að raula um lífsins gæði = 7 sæti Sancho.

adios.

Hafliði Ingason (IP-tala skráð) 26.5.2007 kl. 22:55

2 Smámynd: halkatla

þetta er eitt æðislegasta atriði kvikmyndasögunnar

halkatla, 26.5.2007 kl. 23:08

3 Smámynd: Hrannar Baldursson

Gott val hjá þér Sancho! Ég sá Fiðlarann á þakinu í Þjóðleikhúsinu um árið. Sú uppfærsla var ekki verri en kvikmyndin.

Hrannar Baldursson, 27.5.2007 kl. 17:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband