Nýtt á DVD: Deja Vu (2006) ***

DejaVu04

Hryðjuverk hefur verið framið í New Orleans. Skip var sprengt í loft upp, fórnarlömb yfir 500 talsins. ATF (Bureau of Alcohol, Tobacco and Firearms) fulltrúinn Doug Carlin (Denzel Washington) kemur að rannsókn málsins. Hann er valinn í rannsóknarhóp sem hefur það hlutverki að hafa uppi á hryðjuverkamönnunum, enda fljótur að finna mikilvægar upplýsingar.

Þessi hópur hefur fundið upp svolítið sérstakt tæki, sem gerir rannsóknarmönnum fært að skoða atburði sem gerðust fyrir fjórum og hálfum degi, frá fjölmörgum sjónarhornum. Þarna flýgur trúverðugleiki út um gluggann og maður áttar sig á að nú er maður ekki lengur að horfa á einfalda spennumynd, heldur á vísindaskáldskap. Það er í góðu lagi.

DejaVu09

Þegar Doug uppgötvar að hann getur haft áhrif á atburði sem gerðust fjórum dögum áður, fer fjör að færast í leikinn. Hann og hópurinn hefur fylgst með lífi Claire Kuchever (Paula Patton) en lík hennar skolaði upp á strönd eftir sprenginguna. Hann hefur ástæðu til að trúa því að hún hafi ekki dáið í sprengingunni og telur að hún geti leitt þá að hryðjuverkamanninum. Það gengur eftir, og tekst þeim að handsama Carroll Oerstadt (Jim Caviezel), sem gefur Doug nógu margar vísbendingar til að setja saman djarfa áætlun.

Eftir að hafa fylgst með Claire í rúman sólarhring fer Doug að bera tilfinningar til hennar, og reynir að bjarga henni með því að senda sjálfum sér skilaboð fjóra daga aftur í tímann. Þegar áætlunin gengur ekki alveg upp, ákveður hann að láta senda sig með tímavélinni fjóra daga aftur í tímann.

DejaVu17

Deja Vu er gott ævintýri, en hún fellur í margar gryfjur tímaflakksþversagna, en losar sig samt út úr þeim með því að benda á deja vu, þetta undarlega og þversagnarkennda fyrirbæri sem fólk upplifir þegar því finnst það upplifa eitthvað aftur á nákvæmlega sama hátt og það gerði áður.

Ég hef sjálfur upplifað deja vu, og var gífurlega undrandi yfir þessari upplifun. Ég trúði því að Deja Vu tengdist tímaflakki á þann hátt að maður gæti hugsanlega skynjað eitthvað inn í framtíðina þegar maður er í ákveðnu draumaástandi. Síðar las ég að viðteknar útskýringar á fyrirbærinu væru að tilfinning fyrir minni og upplifun gæti stundum víxlast; að þetta væri einhvers konar skammhlaup í huganum. Þó að sennilega sé það nær s
annleikanum, þykir mér mín gamla kenning miklu skemtilegri.

DejaVu15

Deja Vu er vel leikin, sérstaklega af Denzel Washington og Jim Caviezel, en alltof lítið hefur sést af þeim síðarnefnda undanfarið, eða síðan hann lék Jesús í The Passion of Christ. Paula Patton skilar sínu hlutverki vel, en Val Kilmer er algjörlega flatur í hlutverki FBI mannsins Andrew Pryzwarra.

Leikstjórn Tony Scott hefur lítið breyst. Hann er þekktur fyrir MTV stílinn, stuttar klippingar og óvenjuleg sjónarhorn, en hann hefur góð tök á þessum stíl. Handritið er ágætt, fyrir utan það að erfitt er að taka atburðina trúanlega innan ramma sögunnar.

DejaVu08

Deja Vu minnir svolítið á Frequency (2000), enn betri tímaflakksmynd með Dennis Quaid og Jim Caviezel í aðahlutverkum.

Ég mæli með Deja Vu, enda fín skemmtun, en held þó að þessir hæfileikaríku kvikmyndagerðarmenn hefðu getað gert betur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ég er med tessa mynd hérna, en ég hef ekki kíkt á hana tví mér fannst tetta svo fáránleg hugmynd ad kvikmynd.

Oddur Ingi (IP-tala skráð) 29.4.2007 kl. 12:28

2 Smámynd: arnar valgeirsson

ekki séð hana en kíki örugglega þar sem þú ert ekkert sérstaklega neikvæður.... en mér finnst ferill Densels á hraðri niðurleið og hann leikur í hverju krappinu á fætur öðru, með nokkrum undantekningum þó.

arnar valgeirsson, 29.4.2007 kl. 18:20

3 identicon

Ég verð aðeins að fá að segja mitt álit á þessari mynd. Ég fór á hana í bíó og var mjög hrifinn, lengi framan af. Ég tek það fram að almennt hef ég gaman að vísindaskáldskap og ævintýramyndum. Ég vissi ekki neitt um þessa mynd þegar hún hófst, annað en Denzel léki í henni (ekki svo að skilja að ég sé neinn Denzel-áhugamaður). Plottið virkaði pínu óáhugavert í fyrstu, hryðjuverkaárás... amerískur frumleiki. Jæja, svo fór plottið að þykkna og verða áhugavert þegar tímaormagöngin voru kynnt. Svo þegar allt benti til þess að þetta yrði með betri myndum þá brast á þessi ömurlegi hollívúddíski væmnisendir sem hreinlega eyðilagði fyrir mér myndina.
Myndin er (skv imbd.com) 128 mín. Ég mæli með því fyrir þá sem ætla að horfa á myndina á DVD að fylgjast með klukkunni og stoppa myndina þegar c.a. 20 mín eru eftir. Þá mun myndin lifa í minningunni sem fínasta pæling. Persónulega tel ég nú að það hafi verið mín allra verstu mistök sem bíógestur að labba ekki út þegar ég sá hvað stefndi í. Ef þú sérð pickup jeppa fara heljarstökk þá ertu komin(n) of langt!
P.S. ég varð næstum því þunglyndur af því að rifja upp endinn

Gísli Harðarson (IP-tala skráð) 29.4.2007 kl. 22:09

4 Smámynd: Alvy Singer

Sammála Gísla Harðar, síðustu 20 mín voru alveg hrikalegar...

Alvy Singer, 30.4.2007 kl. 01:38

5 Smámynd: Hrannar Baldursson

Gísli og Alvy: kannski er ég svona mjúkur, en það eina sem mér fannst að síðustu 20 mínútunum var hvernig persónurnar fylgdu frekar plottinu en eigin skapgerð og greind. Það að Doug færi með stúlkuna sem hann ætlaði að vernda um borð í skip sem hafði fullt af virku sprengiefni innanborðs var náttúrulega tóm della. Ég velti líka endinum fyrir mér og fannst tilfinningin sérkennileg, en komst að þeirri niðurstöðu að hún virkaði frekar sem nokkurs konar deja vu, frekar en væmni. Deja Vu er engin snilld, en alls ekkert glötuð heldur, að mínu mati. Það er samt bara hollt að vera svolítið ósammála. 

Arnar og Oddur Ingi: Það væri gaman ef þið settuð inn athugasemd þegar þið hafið séð myndina. Mér finnst spennandi hvað fólk er ósammála um hana.  

Hrannar Baldursson, 30.4.2007 kl. 07:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband