Íþróttakvikmyndir Sanchos: Murderball (2005) - Að sníða stakk eftir vexti

Murderball er íþrótt, meira að segja ólympíuíþrótt. Reglur eru einfaldar, fimm leikmenn í hvoru liði, leikmaður verður að gefa bolta á liðsfélaga innan 10 sek. Öðrum kosti fær hitt liðið boltann, leikmaður með vald á bolta yfir marklínu andstæðinga = 1 stig. Það sem gerir þessa íþrótt athygliverða eru leikmennirnir, en þeir eru allir fatlaðir og bundnir við hjólastóla. Fötlun einstaklinganna er mismikil og spilar stóra rullu í herkænsku og uppstillingu liða. Mark Zupan er í flokki "3", þ.e. hann hefur engan mátt í fótum og takmarkað grip í höndum, flestir leikmenn eru í flokki "2" sem er mitt á milli Zupan og Joe Soares sem er "1" en Joe þessi missti alla útlimi vegna blóðeitrunar í æsku. Reglur leiksins leifa einungis leikmenn með samanlagðan fötlunarstuðul upp á 10 inni á velli á hverjum tíma.

photo_03_hires

Bandaríkin hafa verið ósigruð í hjólastólaruðning (Murderball sem heiti íþróttarinnar þykir ekki við hæfi í opinberum keppnum) á öllum stórmótum fram að HM 2003 sem fram fór í Svíþjóð. Joe Bishop er skærasta stjarna hjólastólaruðnings frá upphafi og sá sem leitt hefur lið USA til sigurs í öllum stórmótum fram að HM 2003. Aldurinn hefur færst yfir Joe og komið að því að hann er ekki valinn  í lið USA, hann söðlar þess vegna heldur betur um og tekur að sér þjálfun Kanada. Kanada vinnur USA í úrslitaleik og sigurganga Þeirra síðarnefndu þar með rofin. Eins og Bandaríkjamönnum sæmir er síðan "showdown" a la allar Bandarískar myndir sem framleiddar hafa verið. Bandaríkin vs. Kanada á Ólympíuleikunum í Aþenu 2004. Ekki verður spillt fyrir lesendum með því að upplýsa útkomu þess hildarleiks en útkoman kemur á óvart, meira að segja skemmtilega á óvart að mínu mati.

Þokki heimildarmyndarinnar býr í viðfangsefnum hennar. Myndin segir frá úrvalsliði USA og þjálfara Kanadamann í hjólastólaruðning en ekki þarf að gægjast langt undir yfirborðið til að komast að raunverulegu viðfangsefni myndarinnar. Hvernig bregðast einstaklingar við áföllum og áhrif breyttra aðstæðna á persónugerð einstaklingsins.

Eftirlætis atriði Sancho:

1. Einn liðsmanna USA lýsir fyrir liðsfélögum sínum þeirra reiði og móðgun sem hann fann fyrir þegar frænka hans spurði hvort ekki væri gaman að vera að fara á ólympíuleika þroskaheftra (Special Olympics). Hvílík fáviska, Special Olypics eru haldnir á hverju ári og allir fá verðlaun og allir eru vinir, ‘heysanna hósanna´. Ólympíuleikar fatlaðra (Paralympics) eru haldnir fjórða hvert ár í beinu framhaldi "alvöru" Ólympíuleikanna.

2. Allar senur þar sem Joe Soares kemur við sögu. Æðruleysi og dugnaður eru hans dygðir. Maður með hálfan líkama en hugarfar eins og Joe er meiri maður en ég og flestir ef ekki allir sem ég umgengst dag frá degi.

3. Fyrrum bekkjarfélagi Mark Zupan lýsir því að Zupan hafi verið bora á afturenda (e. asshole) áður en hann lenti í hjólastól og hann væri bora eftir að hann lenti í hjólastól.

Murderball er heimildarmynd par excellance, brynvarðir hjólastólar eru viðbótarflúr á mynd sem allir ættu að sjá einu sinni en enginn ætti að sjá tvisvar.

Sanco smellir í sig 8 tacos.

Tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta heimildarmynd árið 2005 en varð að lúta í lægra haldi fyrir mörgæsunum síkátu og svaðilför (geisp!!!) þeirra um ísbreiður suðurheimskautsins.

Hreinsaði upp öll möguleg verðlaun á Sundance Film Festival árið 2005.

 

Leikstjórn:

Henry Rubin

Dana Shapiro

 

Fram koma m.a.:

Joe Bishop

Mark Zupan

Keith Cavill

Shristopher Igoe

Joe Soares

 

8/10 IMDB

98% á tomatometer RottenTomatoes

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Gleðilegt Sumar. Ég las greinina þína um "Murderball," og ég segi nú bara, var einhver að kvarta? Þvílíkar hetjur.

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 19.4.2007 kl. 09:49

2 Smámynd: Hrannar Baldursson

Ég tek fram að Sancho er vinur minn sem bloggar sem gestur undir dulnefni.

Hrannar Baldursson, 19.4.2007 kl. 19:33

3 Smámynd: Hrannar Baldursson

Og gleðilegt sumar sömuleiðis!

Hrannar Baldursson, 19.4.2007 kl. 19:33

4 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Gleðilegt sumar Hrannar og mikið var áhugavert að lesa um þessa mynd og þessa íþrótt.

Steingerður Steinarsdóttir, 19.4.2007 kl. 19:38

5 identicon

Svo sannarlega áhugaverð mynd. En gætirðu nokkuð sagt mér hvernig maður póstar you tube myndbönd á þetta blog? Væri vel þegið þar sem ég hef ekki enn fundið það út.

Fabrizio Kjartanelli (IP-tala skráð) 20.4.2007 kl. 12:17

6 Smámynd: Hafrún Kristjánsdóttir

Þessa verð ég að sjá það er ljóst.  Fær maður hana bara út á næstu leigu?

Hafrún Kristjánsdóttir, 20.4.2007 kl. 16:37

7 Smámynd: Hrannar Baldursson

Sæl Hafrún. Ég veit ekki hvar hægt er að finna Murderball, enda hef ég ekki séð hana sjálfur. Vinur minn hann Sancho á hana hins vegar og ætlar að lána mér á næstu dögum.

Fabrizio: Ég skal setja upp leiðbeiningar. Þú ert ekki sá eini sem hefur spurt.  

Hrannar Baldursson, 20.4.2007 kl. 17:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband