Hvernig má bæta íslenska stjórnmálaumræðu?

Það þarf ekki mikið.

  1. Stjórnmálamenn þurfa að meina það sem þeir segja.
  2. Stjórnmálamenn þurfa að hlusta á það sem aðrir segja.
  3. Stjórnmálamenn skulu ekki vera í mótsögn við sjálfa sig.
  4. Stjórnmálamann skulu standa við bæði litlu og stóru orðin.

Þá getum við byrjað að tala saman.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Arnórsson

Stjórnmálamenn í þeirri mynd sem þeir eru í dag, munu hverfa sem gamaldags og úrelt fyrirbæri.

Til að gera þjóðfélög bærileg og þægileg, þarf allt öðruvísi stjórnendur.

Ekki fólk sem fórnar heilbrigðri skynsemi á altari flokkshugsunar eða vegna hræðslu við útlönd...

Fólk sem er sjálfstætt í hugsun og þeir eru ekki margir á Íslandi og vinna alls ekki sem stjórnmálamenn í dag.

Það eru fáir til, næstum engir til akkúrat núna á Íslandi, enn þeir munu birtast...

Það þarf að fá umræðunna inn á allt annan farveg, leita að lausnum í stað þess að elta vandamálið.

Umræða stjórnmálamanna á þingi minnir á þreytt börn í leikskólanum sem rífast um hver það er sem fær að sitja farmmí í bílnum á leiðinni heim...það þarf "fullorðna" á þing.

Óskar Arnórsson, 24.10.2010 kl. 20:56

2 identicon

"

Það þarf ekki mikið.

  1. Stjórnmálamenn þurfa að meina það sem þeir segja.
  2. Stjórnmálamenn þurfa að hlusta á það sem aðrir segja.
  3. Stjórnmálamenn skulu ekki vera í mótsögn við sjálfa sig.
  4. Stjórnmálamann skulu standa við bæði litlu og stóru orðin.

Þá getum við byrjað að tala saman."

Já....thú segir nokkud Hrannar....jaaáa...einmitt thad.

Thú ert greinilega bjartsýnismadur...alveg greinilega..já...ég er nú hraeddur um thad.

Veistu Hrannar...ég hef meiri trú a erfdafraedunum....ég hef nefnilega miklu meiri trú á ad best sé ad krukka dálítid í genum landsmanna...that tharf nefnilega ad fjarlaegja heimskugenid....genid sem fékk landsmenn til thess ad láta kjána eins og Halldór Ásgrímsson og Davíd Oddsson teyma sig á asnaeyrunum.

Fullordnir Íslendingar hafa látid plata sig eins og ad vaeru their 5 ára börn.

Hvernig er annars haegt ad útskýra tilkomu kvótakerfisins?

Ad undirstödu atvinnugrein og adgangur ad verdmaetustu og ENDURNÝJANLEGU audlind thjódarinnar sé í höndum braskara. 

Heldurdu ad stjórnmálamenn stjórnmálaflokka sem verja kvótekerfid séu ad hugsa um thessi atridi frá 1 - 4 sem thú talar um? 

Ertu virkilega svo einfaldur ad ekki sé einbeittur ásetningur stjórnmálamanna ad vidhalda sérréttindum klíkubraedra?

Láta plata sig aftur og aftur (IP-tala skráð) 24.10.2010 kl. 22:52

3 identicon

..Ertu virkilega svo einfaldur ad thú getir ímyndad thér ad thad sé ekki einbeittur ásetningur stjórnmálamanna ad vidhalda sérréttindum klíkubraedra?

Láta plata sig aftur og aftur (IP-tala skráð) 24.10.2010 kl. 22:56

4 Smámynd: Flosi Kristjánsson

Það er oft talað um að menn klæðist mismunandi höttum, þ. e. leiki mismunandi hlutverk eftir því hvort þeir eru í stjórn eða stjórnarandstöðu. Þetta hendir suma íslenska stjórnmálamenn, svo að maður þekkir þá varla fyrir sama manninn fyrir og eftir kosningar.

Getur það verið skortur á upplýsingum sem gerir það að verkum að einn stjórnmálamaður rær öllum árum gegn aðild að Evrópusambandi og samstarfi við AGS fyrir kosningar en kúvendir gjörsamlega þegar hann er orðinn ráðherra? Það gæti líka verið að hið eiginlega vald sé í höndum embættismanna sem eru stimamjúkir og hafa á hraðbergi svarið kunnuglega: "Já, ráðherra"!

Þess utan: almenn kurteisi og tillitssemi gæti gert heilmikið til að bæta stjórnmálaumræðu. Þar er víða pottur brotinn og mættum við mörg taka okkur tak á því sviði.

Flosi Kristjánsson, 25.10.2010 kl. 10:03

5 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Stjórnmálamenn eru ekki meinið. Meinsemdin liggur í flokkunum sem eru orðnir að sjálfstæðum stofnunum. Brjótum þá niður og færum valdið aftur til grasrótarinnar og margt mun batna. Sama á við um Verkalýðshreyfinguna. það þarf að leggja niður allt samráð innan verkalýðshreyfinga og atvinnurekanda

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 25.10.2010 kl. 16:34

6 Smámynd: Óskar Arnórsson

Stjórnmálamenn hafa fyrirgert rétti sínum að vera teknir alvarlega fyrir löngu síðan. Ekki af því að það skorti kurteisi í umræðunna.

Stjórnamálaumræða öll á Íslandi er steindauð og geld av öllu lífi. Ef þeir geta bætt úr því með að byrja að garga á hvorn annan, þá er það alveg þess virði.

Svo mætti prófa að innleiða heilbrigða skynsemi aftur á þing með Stjórnarskránni sem ekkert þarf að breyta. Bara fylgja svona til tilbreytingar....

Óskar Arnórsson, 25.10.2010 kl. 19:05

7 identicon

Steingrímur kom að kjarna málsins þegar hann sagði "Ég ætla að standa vörð um Byggðastofnun" en gleymdi að bæta við, á kostnað skattgreiðenda. Tvenn göng voru vígð nýlega og við skattgreiðendur horfðum upp á aragrúa stjórnmálamanna þakka sér þessar framkvæmdir en ekki þeim sem borguðu, okkur skattgreiðendum. Meðan stjórnmálamenn sýna okkur slíka lítisvirðingu og við fögnum er okkur ekki viðbjargandi. Hvorki stjórnmálamönnum né almennigi. Svo það sé á hreinu eru skattgreiðendur ekki eingöngu þeir sem borga tekjuskatt heldur allir kaupendur vöru og þjónustu.

Guðmundur Ingi Kristinsson (IP-tala skráð) 25.10.2010 kl. 20:07

8 Smámynd: Óskar Arnórsson

Steingrímur er hafurður að fífli ´tlaði ég að segja. Enn hann er ekkert í lagi...og er engin pólitíkus fyrir fimm aura..

Óskar Arnórsson, 26.10.2010 kl. 05:09

9 Smámynd: Ómar Ingi

Innlitskvitt

Ómar Ingi, 27.10.2010 kl. 20:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband