Þegar ég lærði að fljúga ekki

Ég var á leið heim úr vinnunni. Það var hundslappadrífa. Snjórinn leit út eins og púðluhvolpaenglar sem komu svífandi hægt til jarðar og slepptu því að sígelta. Eða það held ég. Ég er ekki nógu vitur til að hlusta á náttúruna og er alltaf beintengdur í iPod Touch furðutækið mitt, þar sem ég hlusta ekki á dynjandi tónlist, heldur skáldsögur og fyrirlestra. 

Þetta er drjúgur göngutúr. Um fimmtán mínútur. Fyrst gegnum snævi þakið skóglendi með útsýni yfir Oslófjörð. Hver einasta trjágrein er hvít og útsýnið greinilega stolið úr auglýsingabæklingi, fyrir utan að þennan dag sást varla til sjávar vegna ofankomu.

Það var á þessum fyrsta kafla sem ég lærði að fljúga. Íslendingar eru of miklir töffarar til að nota kuldaskó með mannbroddum. Að minnsta kosti þessi Íslendingur. Ég var í slitnum Nike skokkskóm og tvöföldum sokkum, enda um 20 stiga frost. Hafði gengið í fimmtán mínútur og heyrði kunnuglegar drunur. Ég heyrði útfyrir sögumanninn að hjörð strætisvagna nálgaðist. Ég þurfti að hlaupa um 300 metra til að ná einum þeirra, upp brekku.

Ég hljóp. Snjórinn um 50 sentímetra djúpur. Þrír vagnar höfðu farið framhjá skýlinu og aðeins einn var eftir. Ég veifaði og bílstjórinn í græna orminum hægði förina, en virtist ekki búinn að ákveða hvort hann ætlaði að stoppa fyrir mig, langatöng í blárri dúnúlpu með svarta lambúshettu á höfði sem huldi allt nema augn, því ég var enn í 100 metra fjarlægð frá strætóskýlinu. Hann stoppaði en lagði ekki upp að skýlinu, heldur hægði á sér úti á miðri götu. Ég tók að sjálfsögðu sprettinn með um 10 kíló á bakinu í bókum, enda ferjan sem ég tek yfir fjörðinn tilvalinn lestrartími.

Eftir um 50 metra sprett sá ég mér til furðu að vinstri fóturinn fór hærra en höfuð mitt, og stuttu síðar fylgdi hægri fóturinn eftir. Ég var fljótur að skipta úr mínu venjulega sjónarhorni niður í kjölturakka, þar sem vinstri mjöðmin skall á ísi þaktri götunni samhliða því að ég skellti flötum lófa niður eins og ég hafði lært í júdótímum sem barn. Það dró úr fallinu.

Virðing gagnvart þyngdaraflinu dýpkar. Sjálfsagt mun ég fórna rottu og tilbiðja guð þyngdaraflsins til að minna mig á eigin ófullkomleika. Ég man bara ekki hvaða guð þetta er eða úr hvaða goðafræði. Kannski ég þurfi að finna hann upp sjálfur?

Þrír dagar hafa liðið. Guð þyngdaraflsins, hvað sem hann heitir, gaf mér minnismerki um flugið. Diplóma í formi marblettar á kviðnum eins og tölvumús að ummáli og í laginu eins og Ísland. Það er meira að segja pinkublettur undir Íslandi til að fullkomna verkið. Vestmannaeyjar, sjálfsagt.

Hvað hef ég lært af þessari flugferð?

  1. Ekki hlaupa á eftir strætó oná ís.
  2. Ekki vera í sléttbotna strigaskóm þegar það er ekki sumar og sól.
  3. Hugsa meira um ferðalagið sjálft og minna um áfangastaðinn.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Ómar Ingi, 26.2.2010 kl. 08:40

2 Smámynd: Hrannar Baldursson

Hrannar Baldursson, 26.2.2010 kl. 09:24

3 identicon

Þetta eru teikn, það að  marbletturinn sem þú færð er í laginu eins og Ísland segir mér að þú eigir að koma heim og setjast að í Vestmannaeyjum.

Burtséð frá bullinu í mér þá var þetta bara nokkuð skemmtileg saga.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 26.2.2010 kl. 20:05

4 Smámynd: Hrannar Baldursson

Takk Rafn.

Ég er ekki að grínast með útlitið á marblettinum. Aldrei að vita nema örlög mín leiði mig til Eyja. Afi minn er þaðan og alltaf þegar ég hef heimsótt Vestmannaeyjar hefur mér liðið eins og heima hjá mér.

Takk fyrir hrósið.

Hrannar Baldursson, 26.2.2010 kl. 20:44

5 Smámynd: Óskar Þorkelsson

góður Hrannar :)  

Óskar Þorkelsson, 26.2.2010 kl. 21:00

6 Smámynd: Hrannar Baldursson

Takk Óskar.

Hrannar Baldursson, 26.2.2010 kl. 21:12

7 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Lífleg lýsing og mátulegt á þig.  Ég sá fyrir mér þessa þöglu púðluhunda svífa alvarlegir á svip til jarðar í algeru tilgangsleysi.

Minnir mig á erindu úr gamalli vísu, sem heitir "Hvað á að gera við strákaling." Erindið er svona:

Tíminn líður, trúðu mér,
taktu maður vara á þér,
heimurinn er sem hála gler,
hugsaðu um hvað á eftir fer.

Jón Steinar Ragnarsson, 27.2.2010 kl. 01:21

8 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Ísing settist oná poll
alveg mátulega.
Íslandsmaður einn um koll
endar rosalega.

Sæmundur Bjarnason, 27.2.2010 kl. 03:38

9 Smámynd: Hrannar Baldursson

Jón Steinar og Sæmundur: takk fyrir kvæðin, þau passa fullkomlega.

Að sjálfsögðu var þetta mátulegt á mig, í sléttbotna strigaskóm á hálum ís. Beljur á svelli hefðu litið til mín lotningaraugum og reynt að læra af mér. Svo klaufalegt var fallið.

Hrannar Baldursson, 27.2.2010 kl. 08:41

10 Smámynd: Óskar Þorkelsson

... en náðiru bussinum ?

Óskar Þorkelsson, 27.2.2010 kl. 14:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband