Hefur nýkommúnismi tekið völdin á Íslandi?

 

page42_blog_entry93_1

 

Þegar nýfrjálshyggjan féll, kom tími nýrrar pólitískrar stefnu á Íslandi. Þessa stefnu má kalla nýkommúnisma, því rétt eins og hefðbundinn kommúnismi snýst hún hvað harðast gegn sínum eigin hugsjónum, gildum og baráttuslögurum og verður að einhvers konar andvana örverpi sem engum gerir gagn, en kvakar samt endalaust út í eitt.

Það má hugsa um þetta út frá díalektísku kenningum Hegels, þar sem hann talar um "kenningu", "gagn-kenningu" og síðan "niðurstöðu".

Mig grunar að frjálshyggjan, sem mótmælt var með kommúnisma á sínum tíma hafi leitt til hófsamari lýðveldissósíalisma. Frjálshyggjan féll aldrei á Íslandi. Það kom aldrei til kommúnisma. Hins vegar var frjálshyggjan uppfærð í frjálshyggju 2.0 og fékk uppnefnið "nýfrjálshyggja". Henni hefur verið mótmælt með nýkommúnisma undir forystu Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar, en verið kölluð ýmist "vinstristjórn" eða "jafnaðarstefna", hvort tveggja rangnefni miðað við aðstæður á Íslandi í dag. 

Nú bíð ég spenntur eftir því hvort að nýkommúnisminn muni vara lengi á Íslandi, eða hvort að þjóðinni takist að brjótast út úr höftum hans og skapa nýlýðveldissósíalisma, fyrst allra þjóða. 

 

Mynd: Real Clear Religion


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Vonandi verður svo.  Vonandi fáum við að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave, það er lykilatriðið að nýjum tímum.  Við verðum að vera á varðbergi o gláta ekki það tækifæri okkur úr höndum renna.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.2.2010 kl. 14:32

2 identicon

Það er nú þegar hægt að kjósa og segja Nei. Allavega er ég búinn að því.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 24.2.2010 kl. 16:26

3 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Einhver kallaði hana vinstri light. Skemmtileg tvíræðni í þeirri nafngift

Rakel Sigurgeirsdóttir, 24.2.2010 kl. 16:31

4 identicon

Greinagóð lýsing, þakka þér.

R (IP-tala skráð) 24.2.2010 kl. 17:38

5 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Hrannar nýlýðveldissósíalismi hljómar nú ekkert sérstaklega spennandi, það mun ekki líða langur tími þar til sumir verði orðnir jafnari en aðrir. Má ég frekar biðja um virkt blandað hagkerfi með lýðræðisvakningu.

Sigurður Þorsteinsson, 24.2.2010 kl. 17:40

6 Smámynd: Ómar Ingi

Annað nafn sami skítur.

Ómar Ingi, 24.2.2010 kl. 18:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband