The Wrestler (2008) ****

thewrestler

Manstu eftir Taxi Driver (1976) og hvernig Robert DeNiro sló í gegn sem Travis Brickle? Misstir þú af Taxi Driver í bíó? Mickey Rourke jafnar þann stórleik og gerir enn betur í The Wrestler. Þú verður að sjá þessa í bíó.

Öðru hverju eru gerðar kvikmyndir með svo eftirminnilegum persónum að þær festast í huga manns og verða nánast að staðalímynd. The Wrestler er ein af þessum myndum. Frammistaða Mickey Rourke er svo frammúrskarandi og eftirminnileg að þetta er nánast eindæmi í sögunni. Ekki er verra að áhugaverðum minnum er bætt inn hér og þar og gefið í skyn að sagan sé hliðstæða af píslarsögu Krists.

Randy 'The Ram' Robinson er á síðasta snúningi sem fjölbragðaglímukappi. Hann elskar íþróttina og allt það sem hún stendur fyrir, en einhvern veginn er hinn brjálaði 8. áratugur liðinn með sínu þungarokki og brjálæði, og 9. áratugurinn einnig farinn hjá og sá 10. nánast á enda. Aldurinn hefur læðst aftur af kappanum og er orðinn hans skæðasti óvinur. The Wrestler fjallar um hvernig þessi glímukappi öðlast ódauðleika.

thewrestler01

Þegar Randy fær hjartaáfall eftir sérlega blóðuga glímu, rennur upp fyrir honum ljós, að kannski, hugsanlega, sé eitthvað meira í lífinu en fjölbragðaglima og rokk og ról. Hann hefur ekkert samband við dóttur sína, lifir í fátækt og uppgötvar smám saman að hann er furðuvera í þessum heimi sem passar hvergi annars staðar en í hringnum. Nánasta samband hans við aðra manneskju er við Pam Cassidy (Marisa Tomei), nektardansmær á pöbb sem lítur fyrst og fremst á hann sem kúnna, þó að hann sjálfur sjái það góða í henni.

Randy fær starf í matvöruverslun við að afgreiða kjötvörur, en hjarta hans, þó að það sé á síðasta snúning, finnur ekki takt sem hentar honum. Hann uppgötvar að líf hans er einskis virði ef hann leggur sig ekki allan í það sem hann hefur alltaf lifað fyrir, fjölbragðaglímuna. Það er hans stolt, hans líf. Hann ákveður þrátt fyrir hjartaáfallið að þjálfa sig upp fyrir eina lokaglímu.

thewrestler02

Saga fórnarlambsins Randy Hrúts er mikil þjáningarsaga, en ákvarðanirnar sem hann tekur eru allar af einurð og stefna allar að því að gera hans eina draum að veruleika - að verða goðsögn og setja mark sitt á heiminn, á hans eigin hátt, sama hvað það kostar og sama þó að það þýði fórn á eins og einum hrúti. Það má vel vera að draumur hans sé barnalegur og ekki í tengslum við veruleikann, en þessi Don Quixote nútímans hefur samt eitthvað til að bera sem gerir hann mun merkilegri en veruleikann sjálfan.

Mickey Rourke hlýtur að fá Óskarinn fyrir þennan magnaða leik. Annað er óhugsandi. Ég man ekki til þess að hafa séð nokkurn leikara setja jafn mikinn kraft í eitt hlutverk, jafnt í hringnum við glímu sem og utan hans. Reyndar er leikur Robert DeNiro í Taxi Driver sambærilegur. Þar sem að fjölmörg hlutverk hafa verið verðug til Óskarsverðlauna, þá gengur Rourke mun lengra heldur en að vera verðugur - hann býr til tragíska og heillandi persónu sem hefur gífurlega mikið að segja um okkar samtíma, þó að hann átti sig engan veginn á honum sjálfur.

Darren Aronofsky sýnir afbragðs leikstjórn þar sem öll áherslan er á sögunni og persónunum, og lítil sem engin á kvikmyndatækninni - þó að hún sé vissulega til staðar. Hann hefur góða tilfinningu fyrir hvernig hægt er að nota kvikmyndatöku til að fylgja eftir góðum leik. Hann á tvær aðrar gífurlega áhugaverðar myndir að baki, stærðfræðiþrillerinn Pi (1998) þar sem hugtakið Pi ógnar sálarheill stærðfræðings, verðbréfamarkaðnum og virðist tengjast heilagri ritningu gyðinga. Requiem for a Dream (2000) fjallaði um afleiðingar vímuefnaneyslu og ætti að vera skylduáhorf fyrir alla þá sem halda að eitthvað sé heillandi við slíka neyslu. Það tók hann fjölmörg ár að gera hina frekar mislukkuðu The Fountain (2006) en meðal þess sem tafði gerð þá myndar er að Brad Pitt hætti við að leika aðalhlutverkið og tók þess í stað aðalhlutverkið í Troy (2004).

Það verður áhugavert að fylgjast með hvað Aronofsky gerir við RoboCop (2010), en hann var reyndar upphaflega orðaður við Batman Begins, sem Christoper Nolan gerði í staðinn, með mikilli lukku. Án vafa einn áhugaverðast leikstjóri nútímans og ein besta frammistaða allra tíma í kvikmynd.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Sé Wrestler í kvöld

og nei ég spái Sean Penn í MILK óskarinn , ekki að ég sé búin að sjá MILK eða ég vilji frekar að Penn vinni.

Það er með óskarinn eins og í öðru Pólitík og leikarar munu kjósa Penn fram yfir Rourke , það er mitt mat en við sjáum til

PS: Frábær grein að venju

Ómar Ingi, 13.2.2009 kl. 11:36

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Já, ég sá Taxi Driver hér um árið og ég hlakka til að sjá Wrestler, Rourke er reyndar orðinn fjandi óhugnanlegar en kannski bara betri. Takk fyrir þetta

Ásdís Sigurðardóttir, 13.2.2009 kl. 13:10

3 Smámynd: Þórður Helgi Þórðarson

Við erum ekki á sama stað hvað kvimyndasmekk varðar, það er klárt!

Ég gafst upp á að horfa á Rourke leika sjálfan sig oooo hvað allt var erfitt hjá honum og þú talar um að Benni Button sé hæg og lítið gerist!!!!

Þrátt fyrir að hafa mikið gaman af því að horfa á ms. Tomei þá gat ég enganvegin horft á þetta til enda.

Kannski að hún meiki sens ef maður horfir á hana alla... gæti verið en eftir klukkutíma var ég búinn að fá nóg.

Að fólk skuli vera að tala um einhvern stórleik... hann er bara að leika sig...semsagt ekki að leika.

Mér finnst Lindsey Lohan ætti að fá óskar á undan honum...að vísu hefði ég ekkert á móti því að sjá hana leika sjálfan sig með me. Ronson

Þórður Helgi Þórðarson, 13.2.2009 kl. 14:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband