Bestu vísindaskáldsögurnar í kvikmyndum, 16. sæti: Predator

Af fimm fyrstu myndunum sem ég hef tekið fyrir á þessum lista hafa þrjár þeirra verið með Arnold Schwarzenegger í aðalhlutverki. Ég vissi ekki til þess að ég væri sérstakur aðdáandi ríkisstjóra Kaliforníu, en ljóst er að sumar myndir hans hafa heldur betur hitt í mark hjá mér.

Predator er einhvers konar blanda af Alien og Rambo, en tekst samt að skapa sinn eigin spennandi heim, sem kemur ímyndunaraflinu í gang, enda hafa verið gerðar tvær framhaldsmyndir og sú þriðja á leiðinni. Engin þeirra hefur þó náð hæðum Predator. Hún er dúndurspennandi og stundum óhugnanleg, en Schwarzenegger stendur sig býsna vel í hlutverki sínu. Það er ekki hverjum sem er sem tekst að vekja samúð með vöðvatrölli í sérsveit Bandaríkjahers sem drepur fólk á þeirra eigin landssvæði. Geimveran sem Arnold tekst á við er eitt vel heppnaðasta skrýmsli kvikmyndasögunnar.  

 

Predator (1987) ***1/2

Sveit hæfustu sérsveitarmanna bandaríkjahers eru sendir inn í Suður-Amerískan frumskóg án þess að vita nákvæmlega hvert verkefni þeirra er. Leyniþjónustumaðurinn Dillon (Carl Weathers) hefur nokkuð skýrar hugmyndir um tilgang ferðarinnar. Skæruliðar hafa komið sér upp herbúðum og safnað að sér gífurlegu magni vopna. Bandaríkjamenn reikna með að þeir ætli sér stóra hluti. Þeir vita ekki nákvæmlega hvað, en bara það að áætlanir séu í gangi þýðir að það verður að stoppa þær.

Dutch (Arnold Schwarzenegger) fer fyrir sérsveitarhópnum en meðlimir hans eru meðal þeirra skrautlegri sem sést hafa í bíómynd. Fremstur þeirra fer Blain (Jesse Ventura), skrotyggjandi hörkutól sem svarar eftir að félagi hans bendir á að hann hafi orðið fyrir skoti: "I ain't got time to bleed." Annar eftirminnilegur sérsveitarmaður er leiðsögumaðurinn Billy (Sonny Landham) en hann er sá fyrsti sem áttar sig á hversu hættulegur hinn raunverulegi óvinur er.

Þegar sérsveitin mætir í regnskóginn finna þeir leyfar af fyrri sveit, sem hefur öll verið slátruð á ómanneskjulegan hátt. Þegar Schwarzenegger njósnar um búðir skæruliðanna sér hann þá taka Bandaríkjamann af lífi. Það er nóg til að sveitin stormar inn í búðirnar og slátrar þar öllum nema Önnu (Elpidia Carrillo). Leyniþjónustumaðurinn Dillon er ánægður með árangur ferðarinnar og haldið er af stað til þyrlunnar sem sækja mun hópinn.

Á leiðinni að þyrlunni verður hópurinn óþægilega var við einhverja dularfulla veru í skóginum, sem getur hulist sjáandi augum, slóð hennar er órekjanleg og vopnin öflugri en nokkuð sem sérsveitarmennirnir hafa áður kynnst. Þegar veran byrjar að drepa hermennina einn af öðrum verður Dutch ljóst að það voru ekki skæruliðarnir sem drápu fyrri sérsveitina, heldur þessi undarlega vera sem virðist vera að veiða hina hættulegu mannskepnu sér til skemmtunar. Anna segir að þessar verur komi í skóginn á tíu ára fresti og drepi bestu hermennina, að hún sé einfaldlega að safna verðlaunagripum.

Einn af öðrum týna sérsveitarmennirnir tölunni þar til Schwarzenegger stendur einn eftir gegn þessari veru, sem kemur utan út geimnum betur vopnuð en nokkur jarðarbúi. Tekst honum að ráða niðurlögum hennar og hvernig þá? Hvaða vera er þetta? Hvaðan kemur hún? Til hvers er hún að þessu?

Það er skemmtilegt hvernig sérsveitarmönnunum er komið í stöðu dýra sem sífellt verða veiðiþjófum að bráð. Yfirleitt eru veiðiþjófar vel undirbúnir og eru aldrei í hættu, og drepa dýrin sér til gamans. Hvað gerist hins vegar ef eitt af dýrunum fær nóg af þessari vitleysu og leggur gildrur fyrir veiðiþjófinn?

Predator er leikstýrð undir sterkri leiðsögn John McTiernan, en hann átti tvö mjög góð ár, 1987 og 1988, en síðara árið leikstýrði hann Die Hard með Bruce Willis. Því miður tókst honum ekki að halda dampi, gerði hina ágætu The Hunt for Red October (1990) og síðan urðu verkefnin innihaldslausari og lélegri með hverju árinu. Síðasta mynd sem hann leikstýrði var Basic, árið 2003, sem var ansi léleg.

 

Tilnefning til Óskarsverðlauna

Bestu tæknibrellur

 

Bestu vísindaskáldsögurnar í kvikmyndum:

 
16. sæti: Predator

17. sæti: Terminator 2: Judment Day

18. sæti: Blade Runner

19. sæti: Total Recall

20. sæti: Pitch Black


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það var lagið! Ein af mínum allrauppáhaldsmyndum! Vantar nú bara RoboCop og Aliens og þá mun hið stórkostlega sæfætímabil sem er 86-87 vera fullkomnað.

Þórður Ingvarsson (IP-tala skráð) 12.11.2007 kl. 22:45

2 Smámynd: Páll Geir Bjarnason

Mér fannst reyndar Basic (2003) koma á óvart. Fléttan var í það minnsta áhugaverð.

Páll Geir Bjarnason, 13.11.2007 kl. 06:12

3 identicon

do it now i'm here!

ég hef ekki meira að segja...

Oddur Ingi (IP-tala skráð) 13.11.2007 kl. 22:23

4 Smámynd: Hrannar Baldursson

Oddur Ingi, þú vísar í eitt af betri atriðum myndarinnar, þar sem Arnold, helsærður reynir að plata geimveruna í gildru...

Páll, ok... virði það. Sjálfum fannst mér því miður ekkert varið í fléttuna.

Þórður. RoboCop og Aliens eru flottar myndir. Spurning hvort að þær nái báðar á topp 20 listann hjá mér, en alveg á hreinu að þær eru báðar á topp 30.

Hrannar Baldursson, 14.11.2007 kl. 01:28

5 Smámynd: Páll Geir Bjarnason

Að setja Blade Runner undir Predator er ekkert nema kvikmyndasögulegt stórslys. Vona að það hafi verið óvart

Páll Geir Bjarnason, 14.11.2007 kl. 04:39

6 Smámynd: Páll Geir Bjarnason

...og nú sé ég að Aliens fer ekki einu sinni á listann. Mér er stórlega misboðinn smekkur þinn kæri vinur. En svona er það nú, við getum ekki öll haft sama smekk.

Páll Geir Bjarnason, 14.11.2007 kl. 04:40

7 Smámynd: Hrannar Baldursson

Páll, nei þetta er alls ekkert óvart. Þær útgáfur sem ég hef séð af Blade Runner finnst mér einfaldlega ekki betri en Predator. Aftur á móti kemur fljótlega í ljós hvort að Blade Runner Final Cut verði enn betri en fyrri útgáfur.

Eins og ég sagði, spurning  hvort að Aliens og Robocop komist á topp 20 listann. Ég er ekkert búinn að fullyrða um það.

Hrannar Baldursson, 14.11.2007 kl. 11:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband