Bestu vísindaskáldsögurnar í kvikmyndum, 20. sæti: Pitch Black


Þá er listinn yfir ofurhetjumyndirnar búinn, og sá næsti tekur við. Sérstakar þakkir fá þeir Arnar og Hafliði Sancho fyrir að plata mig út í þetta. Nú eru það bestu vísindaskáldsögur í kvikmyndum sem taka við. Þessi listi endurspeglar fyrst og fremst mínar eigin skoðanir og smekk á vísindaskáldsögum. Sumar af þeim myndum sem almennt teljast meðal allra bestu vísindaskáldsagna komast ekki inn á þennan lista. Aðal mælikvarði minn fyrir gæði slíkra mynda er hvort að ég sé tilbúinn að horfa á viðkomandi mynd aftur, og hugsanlega aftur og aftur. 

Vísindaskáldsögur fá mann til að hugsa um heiminn á nýstárlegan hátt; sumar,  þeirra kanna endamörk alheimsins, framtíð mannkyns, möguleikann um líf á öðrum hnöttum, hugsanlegar tilfinningar vélmenna, tímaflakk, og þar fram eftir götunum. Til eru fjölmargar góðar vísindaskáldsögur sem komast ekki inn á listann, og vonandi heyrist í lesendum sem hafa ólíkar skoðanir og verða jafnvel svekktur yfir að mér hafi yfirsést einhver gersemi.

Ég ætla að nota tækifærið og horfa á allar mínar uppáhalds vísindaskáldsögur, og fjalla svo aðeins um þær. Þannig að vel má vera að þessi listi verði gerður á nokkrum mánuðum. Ég vona bara að mér takist að klára hann eins og aðra kvikmyndalista sem ég hef byrjað á.

 

Pitch Black (2000) ***1/2

Flutningageimskip lendir í loftsteinaregni sem drepur meirihluta farþega og áhafnar um borð. Skipið brotlendir á plánetu þar sem þrjár sólir skína. Meðal þeirra sem lifa af eru flugkonan Carolyn Fry (Radha Mitchell), mannaveiðarinn William J. Johns (Cole Hauser), heilagi maðurinn Abu al-Walid (Keith David) og unglingsstúlka sem þykist vera strákur og kallar sig Jack (Rhiana Griffith). Þeim stafar öllum mikil ógn af fanganum Richard B. Riddick (Vin Diesel) sem var hlekkjaður um borð í skipinu á leiðinni í rammgirt fangelsi eftir misheppnaða flóttatilraun.

Hópurinn upplifir margar ógnir. Fyrst þurfa þau að finna skjól yfir höfuðið og næringu. Þau finna yfirgefnar búðir og fara þá að hafa áhyggjur af Riddick. En þá kemur fram enn meiri ógn. Á plánetunni búa verur sem halda sig aðeins í skugga og myrkri. Vogi sér nokkur inn á svæði þeirra er viðkomandi samstundis étinn með húð og hári. Það sem verra er, er að plánetan er við það að ganga inn í fyrstu nóttina í 22 ár; nótt sem mun vara í mánuð. Þessi óargadýr sleppa engu lifandi úr klóm sínum og kjafti, og þau eru virkilega svöng.

Þegar myrkrið skellur á snýr hópurinn sér að Riddick, þar sem hann virðist sérstaklega útsjónarsamur og jafnvel minna illmenni en Johns, maðurinn sem handsamaði hann og ætlar sér að græða vel á honum. Riddick er þeim eiginleika gæddur að hann getur séð í myrkri og verður þannig að augu hópsins sem þráir ekkert heitar en að sleppa lifandi af plánetunni. Til þess þarf hópurinn að koma eldsneyti úr skipinu sem fórst yfir í annað skip sem þau finna í búðunum, en þau eru að falla á tíma, myrkrið er við það að skella á og óvættirnar búnar að finna af þeim nasaþefinn.

Pitch Black er vel leikstýrt, tæknibrellur flottar og passa inn í söguna, leikurinn góður og samtölin oft snjöll. Sérstaklega er Riddick vel heppnaður karakter, en ljóst er að eitthvað meira býr í honum en grimmdin ein.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Algerlega sammála þér með að þetta er snilldarmynd.  Hefði kannski sett krítík á þessa mynd saman með The Riddick sem er must see leið og þessi klárast.  Fylgist spenntur með framhaldinu á þessum lista. Kv. Svenni

Svenni Jons (IP-tala skráð) 31.10.2007 kl. 17:30

2 Smámynd: Hrannar Baldursson

Blessaður gamli félagi. Ritdómur um The Chronicles of Riddick er komin inn eins og þú stakkst upp á. Tkak fyrir að fylgjast með. 

Hrannar Baldursson, 1.11.2007 kl. 19:42

3 identicon

Þetta verður skemmtilegur listi, ætli Star Trek mynd komist inn á listann?

Ég hlakka til að fylgjast með þessu. 

Gerða M (IP-tala skráð) 3.11.2007 kl. 23:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband