Varúð! Hörmuleg mynd: BloodRayne (2005) 0


Það sem fær mig til að skrifa þessa grein var auglýsing frá BT sem kom með póstinum í gær. Þar er  BloodRayne auglýst til sölu á DVD fyrir kr. 2299,- (Gos og snakk fylgir).

 

EKKI KAUPA HANA!

 

 

Ég sá BloodRayne fyrir nokkrum mánuðum en skrifaði ekkert um hana þar sem hún virtist ekki vera til á íslenskum vídeóleigum né hafa komið í bíó.

Í gær skrifaði ég um mjög slaka mynd, The Seven Swords, sem var í leikstjórn Tsui Hark, reyndar var mér tjáð í athugasemdum að sú útgáfa sem ég sá hafi verið sundurklippt vitleysa unnin úr mun lengri sjónvarpsþáttum. Ég væri tilbúinn til að kíkja á sjónvarpsþættina ef eitthvað er til í þessu. En til samanburðar, þá er The Seven Swords snilldarverk við hliðina á BloodRayne, og ég er alls ekki að gefa í skyn að The Seven Swords hafi mikla kosti.

BloodRayne er ein af þessum myndum sem er svo léleg að það er ekki einu sinni fyndið. Ef þú tækir með þér hóp af félögum til að gera grín að því hversu léleg þessi mynd er væri kvöldið ónýtt, þar sem vonlaust er að halda sér vakandi yfir þessum leiðindum.

Rayne er vampíra sem hatar allar aðrar vampírur og setur sér það mark í lífinu og drepa vampíruna sem nauðgaði og át síðan móður hennar þegar hún var lítil stúlka, en það vill þannig til að vonda vampíran er pabbi hennar. En þessi aðal og vonda vampíra er leikin af engum öðrum en sjálfum Ben Kingsley, sem hefur aldrei verið jafn lélegur og í þessari mynd.

Aðrir ágætis leikarar taka þátt í hörmungunum og standa sig allir jafn hörmulega. Þarna eru Michael Madsen, Meat Loaf, Billy Zane og Michelle Rodriguez; en þau virðast því miður öll vera uppdópuð og rugluð í þessu samsulli sem snýst ekki um neitt annað en dráp, hefnd og ofbeldi; þar sem mannslíf er einskis virði í huga nokkurs, ekki einu sinni leikstjórans.

En aðeins um leikstjórann, Uwe Boll. Hann hefur fengið það orð á sig að vera versti núlifandi leikstjórinn. Hann er arftaki Ed Wood. Ed Wood er þekktur fyrir að hafa gert Plan 69 from Outer Space, sem nær á neðsta sæti fjölmargra lista yfir lélegustu kvikmynd sem gerð hefur verið og gefin út.

Uwe Boll virðist ekki bera neitt skynbragð á eigin smekkleysi, sem útskýrir kannski hversu smekklausar og lélegar myndirnar hans eru að einhverju leyti. En getur einhver útskýrt fyrir mér hvernig hann fer að því að fá öll þessu þekktu nöfn í leikhópinn? Ég trúi því ekki að hann geti borgað þeim sæmileg laun. Ég einfaldlega trúi ekki að það sé markaður fyrir þessar hörmungar sem hann hefur leikstýrt.

Til að styðja mál mitt get ég bent á að BloodRayne fékk 2.6 af 10 í einkunn á IMDB.com. Einnig fékk hún sex tilnefningar, öll á Bláu hindberjahátíðinni árið 2005, sem ég tel hér með upp:

  • Versta leikkona - Kristanna Loken
  • Versti leikstjóri - Uwe Boll
  • Versta kvikmynd
  • Versta handrit
  • Versti leikari í aukahlutverki - Ben Kingsley
  • Versta leikkona í aukahlutverki - Michelle Rodriguez

Til gamans langar mig að telja upp þær kvikmyndir sem Uwe Boll hefur leikstýrt og birta einkunnir þeirra af IMDB.com, þannig að nú lesandi góður, lærir þú eitthvað um það hvernig hægt er að forðast lélegar bíómyndir - athugaðu hver leikstjórinn er og leitaðu að umsögnum um aðrar myndir eftir hann.

Ég hef séð aðra mynd eftir Uwe Boll, sem gerð er eftir einum af mínum eftirlætis tölvuleikjum, Alone in the Dark, en hún er álíka slæm og BloodRayne. Uwe Boll hefur sýnt og sannað að það þarf ekki listamannsauga til að meika það í bíóheiminum. Hann nær einfaldlega að semja um not á nöfnum tölvuleikja sem hafa verið vinsælir, og getur þannig tryggt sér sölu á myndinni. Hann græðir alltaf, sama hversu lélegar myndirnar eru.

Hæsta mögulega einkunn er 10. Lægsta mögulega einkunn er 1.

 

  • German Fried Movie (1991) - 1.3
  • Barschel - Mord in Genf? (1993) - 1.4
  • Amoklauf (1994) - 1.6
  • Das Erste Semester (1997) - 2.0
  • Sanctimony (2000) - 3.0
  • Blackwoods (2002) - 2.6
  • Heart of America (2003) - 4.5
  • House of the Dead (2003) - 2.0
  • Alone in the Dark (2005) - 2.2
  • BloodRayne (2005) - 2.6
  • In the Name of the King: A Dungeon Siege Tale (2007) - 3.8
  • Seed (2007) - 2.5
  • Postal (2007) - 4.4
  • BloodRayne II: Deliverance (2007) - 4.1

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

100% Sammála en vil benda þér á að það var BT sem þú ert að tala um enda er ELKO ekki OKURBÚLLA dauðans eins og BT og Skífan.

Varist að kaupa nokkuð þar.

Ómar Ingi, 25.10.2007 kl. 23:35

2 Smámynd: arnar valgeirsson

fjórir komma fimm fyrir heart of america.. hlýtur að vera þrusumynd.

en takk fyrir þetta. gott líka að vita hvað skal forðast.

arnar valgeirsson, 25.10.2007 kl. 23:38

3 Smámynd: Hrannar Baldursson

Hárrétt hjá þér Ómar, þetta er í BT auglýsingablaði, ekki ELKO. :)  Og ég myndi passa mig á þeim sem reyna að auglýsa mynd eins og BloodRayne sem skemmtun, þeim er nú varla mikið treystandi.

Arnar, nákvæmlega það sem ég hugsaði um Heart of America. Ætli hún jafnist ekki á við Battlefield Earth, Catwoman eða Pathfinder?

Hrannar Baldursson, 25.10.2007 kl. 23:48

4 Smámynd: halkatla

ég hef ekki séð neinar af þessum ruglumyndum

þakka samt viðvörunina 

halkatla, 26.10.2007 kl. 10:30

5 Smámynd: Ársæll Níelsson

Get ímyndað mér að ástæðan fyrir því að Bloodrayne fékk fjármögnun og myndarlegan cast lista, sé sú að hún er gerð eftir nokkuð vinsælum tölvuleik. Hversvegna farið var að gera Bloodrayne 2 get ég hinsvegar ekki ímyndað mér.

Ársæll Níelsson, 28.10.2007 kl. 15:36

6 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Ég verð að viðurkenna að mér finnst alltaf mjög áhugavert að lesa um fólk sem vinnur við eitthvað sem það á ekkert erindi í. Ég held að það sé til marks um að bjartsýnin er sterkari en raunsæið.

Steingerður Steinarsdóttir, 29.10.2007 kl. 10:10

7 identicon

Skil nú bara ekki fyrir það fyrsta að nokkrum manni skuli yfirhöfuð detta í hug að kíkja á þessa ræmu eftir að hafa séð coverið!  Ég persónulega hefði frekar litið í vaskinn og vonast eftir að í hann hefði safnast meira uppvask en að tékka á einhverju sem heitir Bloodrayne og er með þetta cover.

Það er máski ástæðan fyrir því að grey maðurinn fær síendurtekið að gera myndir, fólk hefur einfaldlega ekki almenna skynsemi til að sneiða framhjá hlutum eins og þessum afar augljósa horbjóði. 

dab (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 11:18

8 identicon

BloodRayne er flott mynd, hún komst í ShowTime sem er fín stöð fyrir þá sem unna lélegum myndum.  Þeir framleiða reyndar einhverja þætti en hvað um það.

 Þessi mynd er að öllu leyti léleg og maður sér allar klisjurnar, kannski ekki eins mikið af brjóstum og í öðrum lélegum myndum sem ég hef séð, sterkan skapgerðarleik og svo mætti lengi telja.  Sumar bláar stjörnur sýna betri leik.

EinarFJ (IP-tala skráð) 30.10.2007 kl. 11:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband