Namibíuferð Salaskóla - síðustu dagarnir

IMG_2589 (Custom) 

Kærar þakkir til þeirra sem sent hafa góðar kveðjur.

Eftir skákmótin fengum við bíltúr um fátækrahverfi í Windhoek, þar sem fjölmörg hús eru púsluð saman af bárujárnsplötum. Fólkið sem sat fyrir utan þessi fátæklegu hús var samt ríkmannlegt í fasi, þar sem bros geisluðu af nánast hverju andliti. Börn léku sér að beinum og steinum, og fjölmargir hinna fullorðna sátu í hóp og ræddu saman; en þó voru sumir sem sátu einfaldlega fyrir utan dyragættina sína og horfðu út í loftið eða á þorpslífið.

Við ræddum aðeins um fátækt og ríkidæmi og bárum saman þetta tvennt, og sýndist okkur meiri gleði vera hægt að finna í þessum fátæku börnum en þeim vel stæðu frá Íslandi. Það er eins og einhver neisti, gleði yfir hinu einfalda, verði fjarlægari eftir því sem auðveldara er að verða sér úti um hlutina.

Við höfum verið á miklu ferðalagi síðustu daga, fórum með Stefáni Jóni Hafstein til Grootfontein, sem er í um 400 km fjarlægð frá Windhoek, þar sem heimsóttir voru mjög fátækir skólar. Algengt er að bækur á bókasöfnum þessara skóla innihaldi um 30 titla. Hefðum við vitað hvað lestrarneyðin er mikil hefðum við komið með fullt af barnabókum.

Þrátt fyrir mikla fátækt skín gleði úr augum bæði barna og fullorðinna. Í allra fátækasta skólanum sem við heimsóttum fengum við danssýningu frá börnum skólans, en skólastýran var sýnilega gífurlega stolt af börnunum. Þrír strákar slógu á bumbur, og tíu stúlkur dönsuðu við taktinn og sungu. Gummi og Birkir ákváðu að slá sér í hópinn og stigu villtan dans og söng ásamt innfæddum. Þetta var gífurlega skemmtileg upplifun.

 IMG_2644 (Custom)

Eftir heimsóknirnar fórum við á Safari búgarð, ekki áreynslulaust því að gírkassinn á bílnum einfaldlega hætti að virka og eftir að hafa runnið töluverða vegalengd tókst bílstjóranum, Stefáni, að koma bílnum í þriðja gír. Næstu 40 kílómetrar voru keyrðir í þriðja gír og ljóst að stopp þýddi að allir færu út að ýta. Með því að taka skuggalega beygjur og dýfur hossuðumst við loks á áfangastað.

IMG_3239 (Custom) 

Þar komumst í návígi við fíla, gíraffa, nashyrninga, fjöldan allan af antílópum og ljón sem hópuðust í kringum dauðan gíraffa og hámuðu hann í sig á meðan við hin sátum inni í búri og fylgdumst vandlega með. Við Stefán Jón tókum mikinn fjölda mynda af villtum fílum, sem mér tekst vonandi að deila á þessari síðu þegar ég kemst í betra netsamband, en ég vil taka það fram að skemmtilegri leiðsögumann og félaga en Stefán Jón Hafstein er erfitt að finna. Hann bloggar á http://stefanjon.is 

Ekki má gleyma því að við fengum eina bestu kjötmáltíð sem nokkurt okkar hefur smakkað, en það var kjöt af oryx. Öll börnin og farastjórarnir líka kjömmsuðu yfir þessu eins og ljón í veislu.

Á heimleiðinni stoppuðum við á útimarkaði þar sem keyptir voru minjagripir. Nokkrir keyptu sér heimasmíðuð skáksett, aðrir grímur, sumir bongótrommur og flestir hálsmen. Hægt var að prútta á þessum markaði, og sumum okkar tókst að prútta allt í botn á meðan aðrir voru sáttir við að borga örlítið meira fyrir gripina.

IMG_3008 (Custom)

Nú erum við komin aftur til Windhoek. Á morgun er frjáls dagur og farið í flugið áleiðis til Íslands að kvöldi. Ljóst er að glaður og reynslunni ríkari hópur mun lenda á klakanum næsta föstudagsmorgun.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þið eruð landi og þjóð til sóma

Skákstelpa (IP-tala skráð) 20.9.2007 kl. 09:43

2 identicon

Það verður gaman að hitta ykkur og heyra frá ævintýrum ykkar. Við í Salaskóla bíðum spennt.

Bestu kveðjur frá öllum í skólanum - Hafsteinn

Hafsteinn Karlsson (IP-tala skráð) 20.9.2007 kl. 17:25

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

FRÁBÆRT hvað þið eruð að standa ykkur vel. Góða ferð heim.  Takk fyrir þessar fallegu myndir. 

Ásdís Sigurðardóttir, 20.9.2007 kl. 21:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband