20 bestu bíólögin: 9. sæti, Do Re Mi - The Sound Of Music, 1965

The Sound of Music er ein af þessum myndum sem ég fæ aldrei leið á. Tónlistin finnst mér hreint frábær og sagan góð. Maríu langar til að ganga í klaustur og gerast nunna. Eina vandamálið er að hún er svo gífurlega lífsglöð að hinar nunnurnar hálf skammast sín fyrir það. Hún fær það verkefni að hjálpa við umönnun barna George von Trapp, sem er foringi í Austurríska sjóhernum, en nasistar reyna að fá hann til liðs með sér. Hann fyrirlítur nasisma og allt sem hann stendur fyrir og skipuleggur því flótta með fjölskyldu sinni, undan herskyldunni með nasistum. María sem orðin er ástfangin af George og þykir mjög vænt um börnin, ákveður að fara með.

Það skiptist semsagt á skini og skúrum í The Sound of Music. Annars vegar er hún heiðskýr og létt kvikmynd um söngglaða fjölskyldu, en hins vegar er hún um kúgun nasismans og fórnirnar sem fólk þurfta að færa í upphafi seinni heimstyrjaldar, þegar það þurfti að velja um hvort að lifað yrði með eða á móti nasisma. 

9. sæti, Do Re Mi - The Sound of Music, 1965 

10. sæti, Wonderful World - Witness, 1985

11. sæti, Bohemian Rhapsody - Wayne's World, 1992 

12. sæti, Summer Nights - Grease, 1978

13. sæti, Raindrops Keep Fallin' On My Head - Butch Cassidy and the Sundance Kid, 1969 

14. sæti, Twist and Shout - Ferris Bueller’s Day Off, 1986

15. sæti, "Supercalifragilisticexpialidocious" - Mary Poppins, 1964

16. sæti, Puttin' On The Ritz - Young Frankenstein, 1974 

17. sæti, Footloose - Footloose, 1984

18. sæti, Hakuna Matata - The Lion King, 1994,

19. sæti: Rawhyde úr Blues Brothers, 1980

20. sæti: Old Time Rock and Roll  úr Risky Business, 1983
 

 Góða skemmtun!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sound of Music? of well...

Svo vill til að 9unda sæti Sancho er líka úr stríðsmynd, að vísu stríðsmynd sem nær ekki á neinn hátt að fanga raunveruleika stríðs á sama hátt og Sound of Music  Reyndar gat ég ekki gert upp á milli tveggja laga og læt því flakka sem 9a og 9b.

9a - Ride of the walkyres = http://youtube.com/watch?v=zLRj5erjhP8
9b - The End = http://youtube.com/watch?v=UemtjPU5sFc

Apocalypse Now

Verður varla betra.

kv. Sancho.

Hafliði Ingason (IP-tala skráð) 25.5.2007 kl. 00:56

2 Smámynd: Hrannar Baldursson

Takk fyrir skemmtilegt bíókvöld Sancho! Ég veit að Apocalypse Now er svalari en Sound of Music samkvæmt bókinni, en varð einfaldlega að gera þessari snilld sæmileg skil. 

Hrannar Baldursson, 25.5.2007 kl. 01:02

3 Smámynd: Hafrún Kristjánsdóttir

SNILD

Hafrún Kristjánsdóttir, 26.5.2007 kl. 00:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband