Gamalkunnur Íslendingur að gera allt vitlaust

Vinnufélagi minn sýndi mér þetta myndband í gær. Hann sagðist hafa sýnt börnum sínum þetta, og að hann væri satt best að segja skíthræddur, og að þetta væri ein stærsta fréttin í heimalandi hans Króatíu. Ég klappaði honum vinalega á öxlina og sagði að ekki væri allt sem sýndist, að mér sýndist viðkomandi fyrirbæri vera skuggalega líkt sprungu og gerði ráð fyrir að gas væri að stíga upp úr henni. Þú skalt leggja þinn dóm á þetta: yfirnáttúrulegt skrímsli eða gas í Lagarfljóti?

Ég gúgglaði þetta, og sá að netið logar vegna þessa myndbands, sem birt var í fyrradag. 

Fyrst sást til Lagarfljótsorms í kringum 1345, og virðist fyrirbærið ansi lífseigt, enda árið 2012 orðið að heimsfrægu skrímsli á einni nóttu.

 

r-ICELANDIC-CREATURE-large570

 

Það er sjálfsagt að leyfa einni af þjóðsögum Jóns Árnasonar fljóta með þessari "frétt".

 

ORMURINN  Í  LAGARFLJÓTI

 

Það bar til einu sinni í fornöld, að kona nokkur bjó á bæ einum í Héraðinu við Lagarfljót. Hún átti dóttur eina vaxna. Henni gaf hún gullhring.

Þá segir stúlkan: "Hvernig get ég haft mest gagn af gullinu því arna, móðir mín?"

"Leggðu það undir lyngorm," segir konan.

Stúlkan tekur þá lyngorm og lætur gullið undir hann og leggur ofan í trafeskjur sínar. Liggur ormurinn þar nokkra daga. En þegar stúlkan fer að vitja um eskjurnar, er ormurinn svo stór orðinn, að eskjurnar eru farnar að gliðna í sundur. Verður stúlkan þá hrædd, þrífur eskjurnar og kastar þeim með öllu saman í fljótið.

Líða svo langir tímar, og fara menn nú að verða varir við orminn í fljótinu. Fór hann þá granda mönnum og skepnum, sem yfir fljótið fóru. Stundum teygðist hann upp á fljótsbakkana og gaus eitri ógurlega.

Þótti þetta horfa til hinna mestu vandræða, en enginn vissi ráð til að bæta úr þeim. Voru þá fengnir til Finnar tveir. Áttu þeir að drepa orminn og ná gullinu. Þeir steyptu sér í fljótið, en komu bráðum upp aftur. Sögðu Finnarnir, að hér væri við mikið ofurefli að eiga og væri ekki hægt að bana orminum eða ná gullinu. Sögðu þeir, að annar ormur væri undir gullinu og væri sá miklu verri en hinn. Bundu þeir þá orminn með tveimur böndum. Lögðu þeir annað fyrir aftan bægslin, en annað aftur við sporðinn.

Ormurinn getur því engum grandað, hvorki mönnum né skepnum, en við ber, að hann setur upp kryppu úr bakinu, og þykir það jafnan vita á stórtíðindi, þegar það sést, t.d. harðæri eða grasbrest.

Þeir, sem enga trú leggja á orm þenna, segja, að það sé froðusnakkur, og þykjast hafa sagnir um það, að prestur nokkur hafi ekki alls fyrir löngu róið þar þvert yfir, sem ormurinn sýndist vera, til að sanna með því sögu sína, að hann sé enginn. 

 

 

Mynd: The Huffington Post

Þjóðsaga: Snerpa.is 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Sérðu ekki hausinn á kvikindinu? Ef þetta er ekki Lagrfljótsormurinn má ég hundur heita!

Sigurður Þór Guðjónsson, 8.2.2012 kl. 19:10

2 identicon

Ég giska á að þetta sé samhangandi klakahragglandi.

Er það nokkuð verrri tillaga en þær sem fram hafa komið?

Sigurður Herlufsen (IP-tala skráð) 9.2.2012 kl. 00:03

3 identicon

Já Sigurður er þetta ekki skrímslahaus? Úff maður er bara skíthræddur!

Jón bóndi (IP-tala skráð) 9.2.2012 kl. 08:22

4 Smámynd: Rebekka

Þetta hlýtur þá að vera fyrsti núlifandi ormurinn með heitt blóð!

Rebekka, 9.2.2012 kl. 16:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband