Furður veraldar: jörðin gleypir byggingu í Gvatemalaborg

500x_guatemala-sinkhole-2010

Þetta er ekki plat. Fréttir um þetta hafa ekki birst víða. Ég hef aðeins séð þær í Daily Mail og Gizmodo, og ætlaði í fyrstu ekki að trúa þessu. Hélt fyrst að þetta væru þrívíddarteikningar. Svo er þó ekki. 

Slíkur atburður gerðist í Gvatemalaborg í byrjun júní 2010. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem slíkt gerist þar í borg, en samskonar atburður átti sér stað í febrúar 2007 þar sem hola myndaðist skyndilega í miðju íbúðarhverfi og gleypti nokkur heimili án viðvörunar.

500x_sinkhole

Það er ekki oft sem maður sér fréttir um náttúrufyrirbæri sem ég vissi ekki að væru til. Þetta er ein slík frétt. Þetta gerðist í Gvatemalaborg. Jörðin gleypti byggingu í heilu lagi og skyldi eftir gapandi holu, um 60 metra djúpa, sem er meira en hæð Hallgrímskirkju.

Svo virðist sem ein manneskja hafi látist þegar jörðin opnaðist, en eftir hitabeltisstorminn Agatha 31. maí hefur verið tilkynnt  um 150 dauðsföll í Gvatemalaborg. Það er hugsanlega samband á milli nýlegrar virkni í eldfjallinu Pacaya og gífurlegs vatnflæðis í kjölfar stormsins Agatha, sem hefur orsakað þetta furðulega fyrirbæri.

Ég get engan veginn sannað það, né hef heyrt vísindamenn halda þessu fram, en mér þætti ekki ólíklegt að tvær ólíkar náttúruhamfarir á svo skömmum tíma geti hafa spilað saman við sköpun þessarar undarlegu holu.

article-1283066-09D68329000005DC-670_964x494

Hér er mynd af eldfjallinu Pacaya í Hondúras sem valdið hefur miklu öskufalli í Gvatemalaborg undanfarna daga:

800px-Pacaya-08

Hugsaðu þér Hallgrímskirkju sökkva ofan í jörðina og eftir stendur 15 metra hár turn í stað 75 metra hárrar kirkju. Þegar þú kemur að brún holunnar og lýsir niður með öflugum kastara, geturðu séð glitta í aðaldyrnar á 60 metra dýpi. Þar sem kirkjan er um 60 metra há, geturðu ímyndað þér dýptina?

 

Heimildir og myndir: 

GIZMODO: The Gates of Hell Just Opened In Guatemala

Daily Mail: Storm blows a 200ft hole in Guatemala City, swallowing a building

Wikipedia: Pacaya eldfjall

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Það er opið 24 klt í Helvíti

Ómar Ingi, 5.6.2010 kl. 11:15

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Undarlega litlar fréttir fara af þessum nátturuhamförum þarna yfirleitt. Væru meiri ef fellibylurinn hefði farið inn í Bandaríkin.

Sigurður Þór Guðjónsson, 5.6.2010 kl. 13:49

3 Smámynd: Hrannar Baldursson

Ómar:

Sigurður Þór: Heimsmynd Íslendinga virðist ekki alveg vera í takt við veruleikann.

Hrannar Baldursson, 5.6.2010 kl. 13:58

4 Smámynd: Óskar Arnórsson

Þetta er alveg stórundarlegt að sjá. Að vatn geti búið til svona nákvæmlega kringlótta holu og með slétta veggi, það er gáta fyrir mér. Þetta líkist meira eins og að risabor hefði verið þarna að verki...

Óskar Arnórsson, 5.6.2010 kl. 15:26

5 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Þessar myndir voru í öllum vefmiðlum hér í noregi fyrir nokkrum dögum Hrannar.. lestu ekki norska vefmiðla ?

Óskar Þorkelsson, 5.6.2010 kl. 16:10

6 Smámynd: Hrannar Baldursson

Óskar Þ: Hef verið upptekinn við annað síðustu daga og hef ekki getað fylgst vel með. :)

Óskar A: Já, þetta er undarlegt.

Hrannar Baldursson, 5.6.2010 kl. 17:32

7 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Þetta er mjög undarlegt fyrirbæri, en ég hef þó séð svona holu, reyndar mjög litla.

Það var á lóðinni minni við húsið að Brekkugötu 9 á Hvammstanga. Þar fann ég svona holu á stærð við stóra jafnvíða plastfötu. Vatn var í botni holunar.

Ég kallaði til starfsmann sveitarfélagsins og spurði hann um lagnir og hvort bilun hefði orðið. Hann gat engu svarað en lét senda mér mold til að fylla holuna.

Mér hugkvæmdist ekki að taka mynd af fyrirbærinu, en þetta var vel lagaður hringur sem hafði myndast, kannski 50 til 60 cm djúpur.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 5.6.2010 kl. 22:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband