Capitalism: A Love Story (2009) ***1/2

capitalism_a_love_story

Í "Capitalism: A Love Story" sannar Michael Moore í eitt skipti fyrir öll að kapítalismi er meinsemd á bandarísku samfélagi, þar sem hinir ríku verða vellauðugir og hinir fátæku heimilislausir, og aðeins örfáar hræður standa á milli þeirra, og þessum millistéttarhræðum fækkar ört. Samkvæmt útreikningum Moore á 1% bandarísku þjóðarinnar 95% af þeim eignum sem eru til í landinu. 

Moore sýnir fram á að samfélagshyggja er ekki sú meinsemd sem kapítalistar segja að hún sé, nema þá aðeins fyrir þá sjálfa, en sýnir aftur á móti fram á að kapítalisminn er góður aðeins fyrir kapítalista sem eiga nóg af auði, en ekki fyrir alla hina sem sitja eftir.

Þessi gagnrýni á fullan rétt á sér. Hlutföllin, ekki bara í Bandaríkjunum, heldur einnig á Íslandi og víðar í heiminum, hafa verið að skekkjast alvarlega, þannig að nánast allur auður heimsins safnast á fárra manna hendur, sem hafa ekkert gert til að öðlast þennan auð annað en að eyðileggja fyrir heiðarlegu fólki með því að taka þátt í svikum og prettum sem af einhverjum furðulegum ástæðum standast lagabókstafi.

Vandamálið við kapítalismann er að komið er fram við fólk eins og hluti, verkfæri sem hægt er að skipta um til að hagræða. Sjálfsagt eru upplýsingar í tölvukerfi sérhvers fyrirtækis í dag metin sem meira virði en mannslíf, eins fáránlega og það kann að hljóma. Sumum þætti sjálfsagt eðlilegt að meta upplýsingar og peninga til jafns við hundruð eða þúsundir mannslífa án þess að velta fyrir sér hver munurinn er á manneskju annars vegar og vél eða kerfi hins vegar.

11. janúar 1944 flutti Franklin D. Roosevelt magnaða ræðu. Mig langar að þýða hluta úr henni sem á við um Ísland í dag.

 


 

Þetta ríki var í upphafi og óx til núverandi styrks verndað af ákveðnum ófrávíkjanlegum pólitískum réttindum - meðal þeirra réttinum til málfrelsis, fjölmiðlafrelsis, trúarbragðafrelsis, réttarhöldum með kviðdómi (ekki á Íslandi), frelsi frá ósanngjarnri leit og yfirtöku eigna. Þetta voru réttindi okkar fyrir lífi og frelsi.

En á meðan þjóð okkar hefur vaxið í stærð og mikilvægi - og efnahagskerfi okkar víkkað út - hafa þessi pólitísku réttindi reynst máttlaus til að tryggja okkur jöfnuð í leit okkar að hamingju.

Við höfum áttað okkur á þeim skýra veruleika að sannkalla einstaklingsfrelsi hefur enga tilvistargetu án fjárhagslegs öryggis og sjálfstæðis. "Menn í neyð eru ekki frjálsir menn." Fólk sem er hungrað og atvinnulaust eru það sem gerir harðstjórn að veruleika.

Á okkar dögum hefur þessi efnahagslegi sannleikur verið tekinn sem sjálfsagður. Við höfum samþykkt, má segja, aðra stjórnarskrá þar sem nýr grundvöllur fyrir öryggi og hagsæld getur verið stofnað fyrir alla óháð stöðu, kynþætti eða skoðunum.

Meðal þeirra eru:

Réttur til að vinna gagnlegt og hagkvæmt starf í atvinnuvegum eða verslunum eða bóndabæjum eða námum þjóðarinnar;

Réttur til að vinna sér inn nógu mikil laun til að verða sér úti um viðunandi fæði og klæðnað og tómstundir;

Réttur sérhvers bónda til að rækta og selja framleiðslu sína á verði sem gefur honum og fjölskyldu hans sæmandi lifibrauð;

Réttur sérhvers athafnamanns, meiri og minni, til að stunda viðskipti í andrúmslofti frjálsu undan ósanngjarnri samkeppni og yfirráðum auðhringa heima sem erlendis;

Réttur sérhverrar fjölskyldu til mannsæmandi heimilis;

Réttur á viðunandi heilbrigðiskerfi og tækifæri til að öðlast og njóta góðrar heilsu;

Réttur á viðunandi vernd frá fjárhagslegri ógn þeirri sem fylgir elli, veikindum, slysum og atvinnuleysi;

Réttur á góðri menntun;

Öll þessi réttindi eru undirstöður öryggis. Og eftir að þetta stríð er unnið verðum við að vera tilbúin að færa okkur fram á veginn, við innleiðingu þessara réttinda, til nýrra markmiða mannlegrar hamingju og farsældar.

Þessar fallegu hugmyndir hafa ekki enn verið innleiddar í Bandaríkjunum.

Ég ólst upp í Breiðholtinu og var það bláeygur að trúa því að þessi réttindi væru trygg meðal okkar, en árið 2008 rann upp fyrir mér að það var blekking ein. Loforðin um frelsi og öryggi á Íslandi var lygi falin í orðskrúði stjórnmálamanna, auðmanna og handbenda þeirra héðan og þaðan úr þjóðfélaginu.

Íslendingar töldu sig vera frjálsa þjóð, en voru það ekki, og verða það ekki fyrr en þeir losna undan þeirri heljarkrumlu sem kröfuhafar og bankar ætla sér að nota til að kreista hvern einasta krónudropa úr sérhverju íslensku heimili, sama hvað það kostar.

Ekki gleyma að þegar manneskju er sparkað út af eigin heimili, þarf hún samt einhvers staðar að búa.

Það er gaman en sárt að horfa á heimildarmynd sem segir sannleikann með jafn stingandi háði og Michael Moore gerir. Hugsanlega er eitthvað af Besta flokknum sprottið upp úr samskonar húmor fyrir hinu sorglega og rangláta.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Haraldsson

kvitt !!! meiriháttar grein þetta/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 4.6.2010 kl. 00:11

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Michael Moore er loddari sem græðir á tá og fingri á áróðursmyndum sínum. Hann fer afar frjálslega með staðreyndir og beitir jafnvel fölsunum til að gera frásögn sína trúverðugri.

Kapitalisminn er undirstaða velferðar almennings á Vesturlöndum. Þar sem kapitalisminn er í hreinustu mynd, þar eru lífskjör, menntun og heilbrigði, það besta sem þekkist á þessari jörð.

Vissulega er mikil fátækt víða í fjölmennum ríkjum og Bandaríkjamenn mættu taka sig verulega á á ýmsum sviðum. En millistéttin er glettilega fjölmenn í landi tækifæranna.

Gunnar Th. Gunnarsson, 4.6.2010 kl. 02:19

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

.... í landinu sem gaf manni eins og Michael Moore, tækifæri til þess að verða margmiljarðamæringur vegna hæfileika sinna.

Gunnar Th. Gunnarsson, 4.6.2010 kl. 02:21

4 Smámynd: Hrannar Baldursson

Gunnar: Nákvæmlega það sem Moore er að segja. Loddarar græða á tá og fingri á kapítalíska hagkerfinu á meðan venjulegt fólk sveltur. Ég segi ekki að meinsemdin (græðgin) í kapítalismanum sé ekki freistandi og flott. Hún er það. Hins vegar hefur hún afar áhugaverðar afleiðingar fyrir samfélagið sem er vel rakið í þessari mynd.

Þó að ég telji kapítalismann illan, tel ég afsprengi hans, kommúnismann, ennþá verri. Þetta er alltaf spurning um að finna meðalveginn, þar sem einstaklingurinn er frjáls án þess að skaða aðra eða samfélagið, og þar sem samfélagið er frjálst án þess að skaða einstaklinginn.

Hrannar Baldursson, 4.6.2010 kl. 05:40

5 identicon

Michael Moore er ekki áreyðanlegasti heimildargerðarmaður sem ég hef heyrt um.  Annars hefur hann örugglega stundum rétt fyrir sér.

En er ekki ástæðan frekar vaxandi sósíalismi í USA, sem og annars staðar í vestur Evrópu?

Vaxandi álögur á vinnandi venjulegt fólk og almennar neysluvörur sem kosta fátæka mikið, en eru afar ódýrar þeim ríkari.

Líttu til dæmis á hvaða land hefur tekið yfir Ísland varðandi lágan ungbarnadauða.  Singapúr!

Ekki er það sósíaldemókratíbrjálæði þar sem verndar helst þá ríkustu, því þeir eru verndaðir með reglugerðaflóði sósíalsns,    ,,,,./þess vegna t,d, hentaði það elítunni fínt að styðja Obama

jonasgeir (IP-tala skráð) 4.6.2010 kl. 08:34

6 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég get alveg tekið undir það að margt sem Moore segir er umhugsunarvert, en eins og "jonasgeir" segir hér að ofan, þá er "Michael Moore ekki áreyðanlegasti heimildargerðarmaður sem ég hef heyrt um."

Kapitalisminn hefur reynst eini raunhæfi drifkrafturinn í framtaki og framförum. Þannig er það bara.... allir hagnast... en auðvitað dálítið mismikið.

Margir sósíalistar misskilja hugtakið "gróða" og telja það af hinu illa. Þeir telja að ef einn græði, hljóti einhver annar að tapa. En það er alls ekki svo. Báðir geta hagnast með frjálsum og réttlátum samningum. Út á það ganga frjáls viðskipti að jafnaði. Þeir sem eru óréttlátir í samningum, tjalda yfirleitt ekki til margra nátta í viðskiptalífinu.

Gunnar Th. Gunnarsson, 4.6.2010 kl. 16:36

7 Smámynd: Hrannar Baldursson

Gunnar: Það er eðlismunur á gróða og græðgi. Gróði getur verið heilbrigður og hvetjandi. Græðgi er hins vegar það hættulega, en það er þetta ástand þegar viðkomandi hefur nóg, en þarf ekki bara meira, heldur helst miklu meira en allir aðrir, og takist viðkomandi að safna að sér slíkum auð sem ekki gagnast neinum og situr kyrr einhvers staðar í eignum, þá fer slíkur auður að skaða út frá sér.

Kapítalismi er eins og sviti. Allt í lagi ef þú skellir þér í sturtu um kvöldið eftir að hafa svitnað töluvert um daginn. En sleppirðu sturtunni í viku eða mánuð, þá breytist hinn heilbrigði sviti í fnyk. 

Hrannar Baldursson, 4.6.2010 kl. 17:33

8 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Græðgi þekkist í öllum samfélögum og er ein af höfuðsyndunum

Gunnar Th. Gunnarsson, 4.6.2010 kl. 17:40

9 Smámynd: Hrannar Baldursson

Gunnar: Með höfuðsynd meinarðu eitthvað illt?

Er það ekki einmitt græðgi sem keyrir kapítalismann áfram?

Hrannar Baldursson, 4.6.2010 kl. 17:55

10 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Sæll Hrannar. Þetta er virkilega mögnuð grein hjá þér og sérstaklega þykir með fengur í þýðingunni í ræðu Franklin D. Roosevelt. Þessi ræða, ég meina þessi hluti hennar á mjög vel við í dag hvar sem er í heiminum. Takk fyrir.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 5.6.2010 kl. 22:40

11 Smámynd: Hrannar Baldursson

Takk fyrir það Hólmfríður.

Hrannar Baldursson, 6.6.2010 kl. 05:55

12 identicon

Ég vil taka undir með Hólmfríði að þessi ræða eigi mjög vel við í dag, og frábær grein hjá þér.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 6.6.2010 kl. 08:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband